Atvinnulífið
Blómlegt atvinnulíf gerir Reykjavík að betri stað til að búa á og skapar fjölmörg afleidd tækifæri fyrir borgarbúa. Viðreisn vill að það sé einfalt og skemmtilegt að stofna fyrirtæki í Reykjavík og að borgin bjóði umhverfi sem laðar að fjölbreytt atvinnulíf, sem er undirstaða velferðar.
Einföldum leyfisumsóknir fyrir fólk sem ætlar að stofna fyrirtæki
Lækkum fasteignaskatta
Fögnum þeim sem vilja hefja rekstur
Byggjum áfram upp aðlaðandi hverfi kringum háskóla í hjarta borgarinnar
Við viljum auðvelda einstaklingum að stunda rekstur á smáum og stórum skala, til dæmis með því að einfalda leyfisumsóknir, gera ferlið allt skilvirkara og að umsækjendum sé boðin aukin aðstoð frá borginni í ferlinu öllu. Viðreisn vill beita sér fyrir áframhaldandi lækkun fasteignaskatta.
Það er ekki sjálfsagt að fólk fari út í rekstur eða stofni fyrirtæki. Reykjavíkurborg á ekki að standa í vegi fyrir þeim sem kjósa að leggja af stað í slíka vegferð heldur beinlínis taka því fagnandi. Borgin á að virka eins og þjónustustofnun, ekki eftirlitsstofnun. Viðreisn styður heilshugar við þær breytingar sem atvinnuvegaráðherra hefur lagt til með Stofnun atvinnuveganna. Þær breytingar fela í sér umfangsmikla einföldun á regluverki sem mun gera það að verkum að það verður einfalt og gaman að opna til dæmis bakarí eða kaffihús í borginni.
Við styðjum við nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, meðal annars með því stuðla að áframhaldandi uppbyggingu í kringum háskólana tvo og gera það eftirsóknarvert fyrir nýsköpunar- og tæknifyrirtæki að vera með starfsemi sína í hjarta borgarinnar.