Málefni
Góð þjónusta við Reykvíkinga er aðalverkefni borgarinnar. Öflugir skólar, sterkar samgöngur, spennandi söfn, sundlaugar, velferðarþjónusta, húsnæðisuppbygging og að halda borginni hreinni og fallegri eru mikilvæg dæmi. Viðreisn vill að Reykjavík verði skemmtilegri, frjálslyndari og skilvirkari borg með kortershverfi þar sem lykilþjónusta er í nálægð við íbúana. Við viljum að næsta kynslóð Reykvíkinga velji að setjast að í höfuðborginni.
Snúum Reykjavík við
Viðreisn vill nýta tækifærin sem blasa við til þess að taka til í borgarkerfinu. Við viljum draga úr yfirbyggingu í stjórnsýslunni og fækka stjórnendum. Ekki getur talist eðlilegt að það séu hlutfallslega fleiri stjórnendur hjá Reykjavíkurborg en öðrum sveitarfélögum.
Börn og fjölskyldur
Viðreisn vill einfalda daglegt líf barna og fjölskyldna í Reykjavík. Það gerum við með því að tryggja að öll helsta þjónusta borgarinnar sé í nærumhverfi og að hún sé til staðar þar sem íbúarnir eru og þegar þeir þurfa á henni að halda. Það gengur ekki að börnin í Reykjavík séu stanslaust á bið. Við viljum að börnum finnist frábært að alast upp í borginni og kjósi að búa hér sem fullorðið fólk.
Byggingar og eignir borgarinnar
Eignasjóður Reykjavíkurborgar er stærsta fasteignafélag landsins, en er ekki rekið í samræmi við það. Skortur á viðhaldi á eignum borgarinnar er ein skýrasta birtingarmynd þess ábyrgðarleysis sem ríkir við stjórn borgarinnar. Því miður virðist enginn bera ábyrgð á fasteignum borgarinnar sem eru afar verðmætar.
Húsnæði fyrir fólk
Húsnæðisuppbygging og skipulagsmál eru eitt af lykilverkefnum borgarinnar. Við viljum sjá fallega og fjölbreytta byggð og íbúðir af góðum gæðum á viðráðanlegu verði sem fólk vill búa í um alla borg.
Samgöngumál
Góðar samgöngur eru lykilatriði fyrir Reykvíkinga. Viðreisn vill að fólk hafi frelsi til að velja á milli góðra ferðamáta sem virka vel um borgina. Að hafa fjölbreyttari valkosti en einkabílinn er gott fyrir budduna, til dæmis þegar fjölskyldur sjá fram á að geta losað sig við bíl númer tvö eða þrjú þegar aðrir samgöngumátar virka vel.
Menning
Menning er órjúfanlegur hluti af lífinu í borginni og lykill að lifandi og skemmtilegu samfélagi. Viðreisn vill að Reykjavík sé borg þar sem menning er sýnileg, aðgengileg og hluti af daglegu lífi íbúa. Við viljum sérstaklega styrkja menningu í nærumhverfi fólks þannig að hún sé ekki bundin við miðborgina heldur hluti af öllum hverfum borgarinnar.
Íþróttir og lýðheilsa
Íþróttir, útivist og hreyfing eru lykilþáttur í lýðheilsu, forvörnum og sterku samfélagi. Viðreisn vill að Reykjavík sé borg þar sem við öll höfum góðan aðgang að íþróttum og hreyfingu, óháð aldri, efnahag eða búsetu.
Fjölmenning
Viðreisn styður við fjölbreytt samfélag og vill auðvelda öllum að aðlagast íslenskri menningu. Við viljum eiga opið samtal við fjölskyldur og einstaklinga af erlendum uppruna um hvað þau þurfa til að verða virkari þátttakendur og stoltir borgarbúar.
Velferð
Velferð borgarbúa byggir á mannréttindum, virðingu og sjálfsákvörðunarrétti hvers og eins. Viðreisn vill veita þjónustuna nær íbúum og draga úr óþarfa skriffinnsku.
Atvinnulífið
Blómlegt atvinnulíf gerir Reykjavík að betri stað til að búa á og skapar fjölmörg afleidd tækifæri fyrir borgarbúa. Viðreisn vill að það sé einfalt og skemmtilegt að stofna fyrirtæki í Reykjavík og að borgin bjóði umhverfi sem laðar að fjölbreytt atvinnulíf, sem er undirstaða velferðar.
Græn og heilnæm borg
Umhverfismál eru lykilmál í Reykjavík. Viðreisn vill ráðast í skógrækt á illa förnum svæðum í eigu Reykjavíkur sem og endurheimta votlendi í borginni. Við viljum stórauka gróður í borginni og ætlum við að planta 50 þúsund trjáplöntum af ýmsum tegundum á kjörtímabilinu, sérstaklega þar sem þétting hefur verið mikil og græn svæði hafa vikið fyrir byggð.