Byggingar og eignir borgarinnar
Eignasjóður Reykjavíkurborgar er stærsta fasteignafélag landsins, en er ekki rekið í samræmi við það. Skortur á viðhaldi á eignum borgarinnar er ein skýrasta birtingarmynd þess ábyrgðarleysis sem ríkir við stjórn borgarinnar. Því miður virðist enginn bera ábyrgð á fasteignum borgarinnar sem eru afar verðmætar.
Sinnum viðhaldi jafnt og þétt
Setjum stjórn yfir fasteignir borgarinnar
Höfum gagnsæi í framkvæmdum og setjum upp mælaborð
Viðreisn vill breyta þessu í samræmi við þær áherslur okkar að borgarfulltrúar taki ábyrgð, forgangsraði verkefnum og séu óhræddir við að taka ákvarðanir. Við munum setja stjórn yfir eignasafn borgarinnar sem tryggir að byggingar séu í lagi og að viðhaldi sé sinnt jafnt og þétt svo koma megi í veg fyrir þau fjölmörgu vandamál sem komið hafa upp síðustu ár. Við eigum að nýta byggingar í eigu borgarinnar eins vel og kostur er, hafa gagnsæi í framkvæmdum og byrja þar sem þörfin er mest.
Viðreisn ætlar að setja upp Mælaborð framkvæmda í Reykjavík þar sem íbúar og fyrirtæki geta fylgst með framvindu mála í rauntíma, til dæmis ef verið er að gera upp leikskólann í hverfinu eða leggja nýja gangstétt fyrir utan heima hjá þér.