Frambjóðendur
1. sæti
Björg Magnúsdóttir
Ég er fædd í Reykjavík og alin upp í Setberginu í Hafnarfirði. Ég bý í dag í Gerðunum með fjölskyldunni minni eftir meira en áratug í Miðbæ og Vesturbænum. Elska öll þessi hverfi! Ég er stjórnmálafræðingur með MA í hagnýtri menningarmiðlun og athafnastjóri hjá Siðmennt. Ég hef starfað sem fjölmiðlakona á dagblaði, fréttastofum, útvarpi og sjónvarpi í tæp tuttugu ár og hef einnig skrifað bækur og sjónvarpsþætti, meðal annars Ráðherrann og Vigdísi. Þá var ég aðstoðarmaður borgarstjóra frá 2024-2025.Eftir að ég eignaðist strákinn minn 2022 fann ég á eigin skinni á hversu vondum stað leikskólakerfið í borginni er og trúði vart mínum eigin augum. Þá fór ég að beita mér fyrir betri þjónustu í Reykjavík og ætla mér að halda því áfram.Fyrst og fremst vil ég að næsta kynslóð velji að búa í Reykjavík og elski að búa í Reykjavík. Það þýðir að húsnæði sé á viðráðanlegu verði og hringrás viðvarandi á fasteignamarkaði, að leikskólar og skólar borgarinnar séu í forystu, að þjónusta sé inni í hverfunum og að Reykjavík sé skemmtileg, fjölbreytt og lífleg borg. Síðast en ekki síst verður að vera traust milli borgarstjórnar og Reykvíkinga.
2. sæti
Róbert Ragnarsson
Ég er fæddur í Keflavík og uppalinn þar sem og í Breiðholtinu. Ég bý núna í Vesturbænum en hef búið víða um borgina, meðal annars í Breiðholti, Árbæ, miðbænum og Skipholtinu. Ég er stjórnmálafræðingur með meistarapróf í stjórnsýslu og rekstri sveitarfélaga. Hef lokið fjölbreyttum námskeiðum í stjórnun, rekstri og stjórnarháttum. Ég hef verið bæjarstjóri í Grindavík og Vogum og stofnaði síðar mitt eigið ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfði sig í þjónustu við sveitarfélög. Það félag sameinaðist KPMG þar sem ég var meðeigandi og bar ábyrgð á þjónustu félagsins við opinbera aðila. Allan minn starfsferil hef ég verið í almannaþjónustu og brenn fyrir umbótum í opinberum rekstri. Ég hef unnið mikið fyrir Reykjavíkurborg og þekki því stjórnkerfið og þjónustuna ágætlega, og ákvað að bjóða mig fram til að ná meiri árangri og veita betri þjónustu fyrir borgarbúa. Ég vil beita mér fyrir því að reksturinn skili meiri peningum í þjónustu við borgarbúa, og þá sérstaklega börn. Eins vil ég auka fjárfestingagetu borgarinnar, þannig að borgarsjóður hafi efni á uppbyggingu og viðhaldi skóla, íþróttamannvirkja og annarra innviða.
3. sæti
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Ég er fæddur í Reykjavík og alinn upp í Laugardalnum, með sterka tengingu við borgina og hverfin hennar. Ég bý í Laugardalnum, þar sem ég nýt þess að vera hluti af lifandi hverfissamfélagi. Ég er með BFA gráðu í leiklist frá Juilliard listaháskólanum og hef starfað við leiklist og kvikmyndagerð bæði hér heima og erlendis um árabil. Ég hef einnig gefið út fimm barnabækur. Starfið hefur gefið mér dýrmæta reynslu af því að vinna með fjölbreyttu fólki, segja sögur og skilja ólík sjónarhorn.Að auki hef ég stundað nám í Executive MBA við Oxford-háskóla og starfaði um tíma í Stokkhólmi sem deildarstjóri hjá Eystrasaltsráðinu, þar sem ég sinnti samstarfi á sviði mennta-, menningar- og æskulýðsmála. Sú reynsla hefur gefið mér innsýn í alþjóðlegt samstarf og stjórnsýslu.Ég fór inn í pólitík vegna þess að mér finnst skipta máli hvernig borgin virkar í daglegu lífi. Ég hef verið að kynnast því betur undanfarið og sé að það er margt sem má gera betur. Mig langar að leggja mitt af mörkum og hafa jákvæð áhrif á mitt nærumhverfi.Ég vil beita mér fyrir því að Reykjavík virki betur fyrir fólk í daglegu lífi, sérstaklega fyrir fjölskyldur og börn. Það snýst um sterka innviði í hverfunum, góð almannarými, öflugt íþrótta- og menningarlíf og þjónustu sem er nær fólki. Ég vil sjá borg sem er hlý, lifandi og í betri tengingu við íbúana.
4. sæti
Margrét Rós Sigurjónsdóttir
Ég er fædd í Köben og uppalin í Grafarvogi. Í dag bý ég í Laugardalnum. Eftir 13 ára búsetu í Stokkhólmi var farið í mikla rannsóknarvinnu til að velja hverfi - og dalurinn góði varð fyrir valinu. Ég er umhverfisfræðingur og með meistarapróf í sjálfbærni. Ég er búin að vera í eigin rekstri á veitingastöðum með manninum mínum í fjöldamörg ár en hef alltaf líka starfað að einhvers konar umhverfismálum. Núna vinn ég í tengslum við Þingvallavatn og mengunarvarnir þar. Ég hef reynslu af því að vera atvinnurekandi og að eiga við kerfin sem stundum þvælast svolítið fyrir manni. En helsti drifkrafturinn minn er í raun móðurhlutverkið. Að eiga þrjú börn sem hafa þurft að skipta ítrekað um skólastofur vegna myglu, stunda íþróttir í óviðunandi húsnæði og vera á allskonar biðlistum eftir þjónustu er ágætis hvati til að fara í pólitík.Þau tvö mál sem hafa fært mig á þessa braut stjórnmálanna eru umhverfismál og börnin. Unga fólkið sem er að eignast börnin á að vilja búa í borginni okkar - en börnin þeirra, framtíðarkynslóðir, þurfa líka að geta búið í borginni. Við þurfum að hafa umhverfismál að leiðarljósi í öllum ákvörðunum sem teknar eru í borginni og alltaf vera að velta því fyrir okkur hvort við erum að færa borgina okkar til framtíðar eða erum við föst í fortíðinni og þannig missa samkeppnishæfni okkar við önnur sveitarfélög og aðrar borgir í löndunum í kringum okkur.Ég vil styrkja grunnþjónustuna og gera mitt besta til að vinna til baka traust fólks til borgarstjórnar. Það gerist held ég bara ef fólk finnur mun í sínu nærumhverfi, sér að farið er í framkvæmdir við myglaða skóla og ef borgarfulltrúar tala skýrt. Svo ætla ég að beita mér fyrir því að borgin okkar verði grænni og fallegri. Ég vil gróðursetja meira, endurheimta votlendi, friða meira land innan borgarmarkanna og halda vel utan um grænu svæðin okkar.
5. sæti
Eyþór Steinn Steinarsson
Ég er 27 ára fjögurra barna bróðir fæddur og uppalinn á Hellu en flutti í bæinn til að sækja nám á tölvubraut í Tækniskólanum þegar ég var 16 ára. Síðan þá hef ég fundið mér allskonar skemmtilegt að gera, eins og að vera barþjónn, tölvusölumaður, kennt krökkum að forrita í Austurbæjarskóla og núna framkvæmdastjóri og meðstofnandi Hopp.Síðastliðin sjö ár hef ég verið að fylgja eftir vexti Hopp, en við erum núna með 70 útibú í 17 löndum á víð og dreif í Evrópu, Bahrain og Costa Rica. Samhliða vinnu minni hjá Hopp er ég líka að læra myndlist í Listaháskólanum.Ég trúi innilega á að ef maður vill laga það sem má betur fara í nærumhverfi sínu er engin betri leið en að bara taka þátt. En þannig kem ég inn í pólitískt starf upphaflega fyrir nokkrum árum síðan í gegnum umræðu um umhverfismálin, föstudagsverkföllin og önnur málefni ungs fólks en fór að taka þátt í borgarumræðunni í tengslum við samgöngumál fyrst sem formaður Samtaka um Bíllausan Lífsstíl og síðar í tengslum við Hopp. Mér finnst sveitarstjórnarmál vanmetin. Við erum miklu oftar í daglegri snertingu við sveitarfélagið en ríkið, og það á sérstaklega við um borgina. Þar af leiðandi skiptir höfuðmáli að borgin sé vel rekin og að kerfi til að taka góðar ákvarðanir séu til staðar. Ég vil sjá borgina þjónusta íbúa sína bæði betur og skilvirkar.
6. sæti
Sandra Hlín Guðmundsdóttir
Ég er fædd og uppalin í Reykjavík, bjó öll mín uppvaxtarár í Breiðholti. Var fyrst í Breiðholtsskóla og svo í FB. Núna bý ég í Gerðunum, í 108 Reykjavík. Ég er með BA gráðu í uppeldis- og menntunarfræði (tók trúarbragðafræði sem auka grein) og svo er ég með MA í náms- og starfsráðgjöf. Ég hef unnið með börnum og ungmennum í 20 ár. Hef unnið á leikskólum bæði í hlutastarfi og fullu starfi, svo hef ég starfað á frístundaheimili bæði í hlutastarfi og svo sem forstöðukona. Síðustu 11 ár hef ég verið í Borgarholtsskóla. Ég er formaður Félags náms- og starfsráðgjafa og sit sem varamaður í stjórn og samninganefnd Félags framhaldsskólakennara.Ég er í pólitík því ég trúi því að við getum gert betur í málefnum barna og ungmenna. Við eigum framúrskarandi starfsfólk sem hefur þekkingu og reynslu í málaflokknum og Reykjavíkurborg á að vera leiðandi í skóla og frístundamálum. Við eigum að grípa börnin miklu fyrr, við vitum hvernig á að gera það, við vitum hvaða börn þetta eru og það er kominn tími til að forgangsraða af alvöru fyrir börn og ungmenni. Ég mun beita mér fyrir skóla og frístundamálum. Fyrir mér liggur grunnurinn þar, ef við erum með okkar á hreinu varðandi börnin þá er borgin góður staður til að búa á. Börnum og ungmennum á að líða vel og foreldrar eiga að treysta borginni til þess að grípa börnin þegar þess þarf.
7. sæti
Sverrir Páll Einarsson
Ég er fæddur og uppalinn í Vesturbænum og bý þar enn. Ég er í meistaranámi í lögfræði við Háskóla Íslands. Ég er forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingu Viðreisnar og hef verið það síðastliðið ár. Þar hef ég fengið að kynnast pólitík. Mig langaði að beita mér fyrir því að bæta mitt nærsamfélag. Mig langaði að hjálpa að byggja upp betra samfélag. Mig langaði að hjálpa að byggja upp samfélag þar sem borgurum væri treyst og ákvarðanir ekki teknar þvert á vilja þeirra. Mig langar að leggja mitt af mörkum til þess að gera Reykjavík að borg þar sem fólk á mínum aldri vill fá að búa í.
8. sæti
Monika Katarzyna Waleszczyńska
Ég er fædd í Gdańsk í Póllandi, en mitt íslenska uppeldi fékk ég í Hnífsdal. Ég bý í Grafarvogi sem er dásamlegt hverfi en ég hef búið þar síðan 1998. Ég er með BS í ferðamálafræði með þjóðfræði sem aukagrein ásamt meistaragráðu MLM í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun. Ég er líka stjórnendamarkþjálfi og leiðsögukona. Ég hef starfað við ráðningar og sem yfirmaður og viðskiptastjóri í ferðaþjónustufyrirtæki ásamt leiðsögn. Ég reynslu og þekkingu á mannauðsmálum gegnum starf mitt sem ráðgjafi í mannauðsmálum og mannauðsstjóri. Auk þess hef ég mikla innsýn í málefni innflytjenda í gegnum túlkastörf.Eftir 30 ára búsetu á Íslandi vil ég hafa jákvæð áhrif á mitt nánasta umhverfi. Ég mun beita mér fyrir frelsi og jafnrétti. Mig langar að sjá Reykjavík sem borg fyrir alla sem gott er að búa í.
9. sæti
Samúel Torfi Pétursson