Snúum Reykjavík við!

Góð þjónusta við Reykvíkinga er aðalverkefni borgarinnar. Öflugir skólar, sterkar samgöngur, spennandi söfn, sundlaugar, velferðarþjónusta, húsnæðisuppbygging og að halda borginni hreinni og fallegri eru mikilvæg dæmi. Viðreisn vill að Reykjavík verði skemmtilegri, frjálslyndari og skilvirkari borg með kortershverfi þar sem lykilþjónusta er í nálægð við íbúana. Við viljum að næsta kynslóð Reykvíkinga velji að setjast að í höfuðborginni.

Minni peningur i kerfið.
Meiri peningur í fólkið.

Viðreisn vill nýta tækifærin sem blasa við til þess að taka til í borgarkerfinu. Við viljum draga úr yfirbyggingu í stjórnsýslunni og fækka stjórnendum. Ekki getur talist eðlilegt að það séu hlutfallslega fleiri stjórnendur hjá Reykjavíkurborg en öðrum sveitarfélögum.

Borg sem er góð fyrir
börn er góð fyrir alla.

Einföldum daglegt líf barna og fjölskyldna í Reykjavík. Það gerum við með því að tryggja að öll helsta þjónusta borgarinnar sé í nærumhverfi og að hún sé til staðar þar sem íbúarnir eru og þegar þeir þurfa á henni að halda.

Frjáls og skemmtileg borg.
Borg sem fólk elskar að búa í.

Til þess að næsta kynslóð velji að vera hérna þarf Reykjavík að virka. Reykjavík á að vera frjálslyndari, skemmtilegri, einfaldari og fallegri. Hér á að vera gaman að stofna og reka fyrirtæki.