Snúum Reykjavík við!
Með því að draga saman í miðlægri stjórnsýslu, sameina svið og endurskipuleggja fagráð borgarinnar einföldum við kerfið. Við styttum boðleiðir og setjum fókusinn á þjónustu við íbúa. Við ljúkum verkefnum sem þjóna ekki lengur tilgangi sínum og setjum kjarnaverkefni í forgang. Viðreisn mun þannig árlega setja allt að milljarð króna sem í dag fer í stjórnsýslu yfir í grunnþjónustu við Reykvíkinga.
Viðreisn hefur beitt sér fyrir því, og mun gera áfram, að borgin bjóði út rekstur sem augljóst er að einkaaðilar geta sinnt betur. Á meðal þess er sala á Malbikunarstöðinni Höfða, sala fasteigna sem ekki tengjast kjarnastarfsemi borgarinnar og að skila rekstri hjúkrunarheimilisins Droplaugarstaða til ríkisins enda er rekstur hjúkrunarheimila á könnu ríkisins. Perlan er gott dæmi um vel heppnaða sölu á eignum borgarinnar og tækifærin eru fleiri. Eins munum við tryggja að nærliggjandi sveitarfélög greiði kostnað við þjónustu sem borgin sinnir til dæmis í velferðar- og félagsmálum. Reykjavíkurborg á ekki að bera kostnað af þjónustu fyrir önnur sveitarfélög.
Við ætlum að byggja upp traust milli borgarbúa og borgarstjórnar. Það gerist til að mynda með því að skerpa á ábyrgð, hlutverki og umboði stjórnmálamanna og embættismanna. Það gerist líka með því að treysta fagfólki og Reykvíkingum og draga úr miðstýringu og stjórnsemi. Viðreisn vill að borgarfulltrúar taki ábyrgð á því sem gerist í borginni og sýni það í verki. Við erum óhrædd við að taka erfiðar ákvarðanir í þágu þess að efla þjónustu borgarinnar, auka skilvirkni og byggja upp betri framtíð. Viðreisn vill nota tæknilausnir, mælingar og gervigreind til að ná fram byltingarkenndum breytingum.
Við vitum að starf borgarfulltrúans er þjónustustarf. Við erum tilbúin til að bretta upp ermar, ganga í verkin og hugsa í lausnum.
Byggingar og eignir borgarinnar
- Sinnum viðhaldi jafnt og þétt
- Setjum stjórn yfir fasteignir borgarinnar
- Höfum gagnsæi í framkvæmdum og setjum upp mælaborð
Viðreisn vill breyta þessu í samræmi við þær áherslur okkar að borgarfulltrúar taki ábyrgð, forgangsraði verkefnum og séu óhræddir við að taka ákvarðanir. Við munum setja stjórn yfir eignasafn borgarinnar sem tryggir að byggingar séu í lagi og að viðhaldi sé sinnt jafnt og þétt svo koma megi í veg fyrir þau fjölmörgu vandamál sem komið hafa upp síðustu ár.
Við eigum að nýta byggingar í eigu borgarinnar eins vel og kostur er, hafa gagnsæi í framkvæmdum og byrja þar sem þörfin er mest.
Viðreisn ætlar að setja upp Mælaborð framkvæmda í Reykjavík þar sem íbúar og fyrirtæki geta fylgst með framvindu mála í rauntíma.
Atvinnulífið
- Einföldum leyfisumsóknir fyrir fólk sem ætlar að stofna fyrirtæki
- Lækkum fasteignaskatta
- Fögnum þeim sem vilja hefja rekstur
- Byggjum áfram upp aðlaðandi hverfi kringum háskóla í hjarta borgarinnar
Við viljum auðvelda einstaklingum að stunda rekstur á smáum og stórum skala, til dæmis með því að einfalda leyfisumsóknir, gera ferlið allt skilvirkara og að umsækjendum sé boðin aukin aðstoð frá borginni í ferlinu öllu. Viðreisn vill beita sér fyrir áframhaldandi lækkun fasteignaskatta.
Það er ekki sjálfsagt að fólk fari út í rekstur eða stofni fyrirtæki. Reykjavíkurborg á ekki að standa í vegi fyrir þeim sem kjósa að leggja af stað í slíka vegferð heldur beinlínis taka því fagnandi. Borgin á að virka eins og þjónustustofnun, ekki eftirlitsstofnun. Viðreisn styður heilshugar við þær breytingar sem atvinnuvegaráðherra hefur lagt til með Stofnun atvinnuveganna. Þær breytingar fela í sér umfangsmikla einföldun á regluverki sem mun gera það að verkum að það verður einfalt og gaman að opna til dæmis bakarí eða kaffihús í borginni.
Við styðjum við nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, meðal annars með því stuðla að áframhaldandi uppbyggingu í kringum háskólana tvo og gera það eftirsóknarvert fyrir nýsköpunar- og tæknifyrirtæki að vera með starfsemi sína í hjarta borgarinnar.
Samgöngumál
- Tryggjum sterka og fjölbreytta samgöngumáta sem fólk hefur frelsi til að velja um
- Styðjum Samgöngusáttmálann fyrir framtíð Reykjavíkur
- Hröðum vegaframkvæmdum við Bústaðaveg og Miklubraut
- Komum böndum á gjaldskyldufrumskóg bílastæða
Viðreisn styður Samgöngusáttmálann og við viljum halda áfram með Borgarlínu sem er grundvallaratriði fyrir framtíð Reykjavíkur. Að sama skapi verðum við að hraða sem mest framkvæmdum sem gagnast bílum, til dæmis mislægum gatnamótum Bústaðavegar og Sæbrautar, Miklubraut í jarðgöng og lagningu Sundabrautar. Eins er mikilvægt að bæta flæði umferðar með snjallri stýringu umferðarljósum og markvissum aðgerðum þar sem tafir eru mestar. Eflum áfram þjónustu Strætó, framlengjum metnaðarfulla hjólreiðaáætlun Reykjavíkur og aðlögum hana að nýjum hverfum og auknum fjölda hjólreiðamanna.
Kortershverfi og góð þjónusta inni í hverfunum er lykilbreyta í því að draga úr skutli sem er fastur liður í lífi Reykvíkinga í dag. Börn þurfa að geta gengið örugga og vel upplýsta leið í skólann og það á að vera auðvelt fyrir börn og ungmenni að nýta almenningssamgöngur. Öflug vetrarþjónusta á gangstéttum og hjólastígum gerir það að raunhæfum möguleika að nýta hjól og aðra virka ferðamáta allan ársins hring.
Viðreisn mun áfram beita sér fyrir frelsi og samkeppni á rafskútumarkaði og halda áfram að styðja við nýsköpun og nýjungar í samgöngumálum.
Kortershverfi og góð þjónusta inni í hverfunum er lykilbreyta í því að draga úr skutli sem er fastur liður í lífi Reykvíkinga í dag. Börn þurfa að geta gengið örugga og vel upplýsta leið í skólann og það á að vera auðvelt fyrir börn og ungmenni að nýta almenningssamgöngur. Öflug vetrarþjónusta á gangstéttum og hjólastígum gerir það að raunhæfum möguleika að nýta hjól og aðra virka ferðamáta allan ársins hring.
Viðreisn styður að Reykjavíkurflugvöllur sé til langs tíma litið víkjandi. Á meðan hann er á núverandi stað sé flugöryggi og notagildi flugvallarins tryggt. Í samræmi við samþykkta tillögu Viðreisnar í borgarstjórn viljum við að einka-, þyrlu-, kennslu- og æfingaflug færist frá flugvelli borgarinnar sem fyrst.