Greinar
Tekjutengjum frístundastyrkinn
Íþróttaiðkun barna er eitt öflugasta forvarnartæki sem við höfum. Engu að síður horfum við upp á kerfi þar sem sífellt fleiri börn sitja eftir. Á sama tíma og við vitum að hreyfing, þátttaka og félagslegt umhverfi í íþróttum styrkir bæði líkamlega og andlega heilsu barna, hefur kostnaður við íþróttaiðkun rokið upp.
Borgin sem hætti að hlusta
Húsnæðisvandinn í Reykjavík snýst ekki bara um fjölda íbúða. Hann snýst fyrst og fremst um það hvort við erum að byggja íbúðir fyrir fólk sem er til, hefur áhuga á að búa í borginni eða flytja til hennar. Búið er að skapa ástand þar sem gengið er út frá því að kerfið viti betur en íbúarnir hvernig þeir vilja búa.
Hvernig get ég aðstoðað?
Ég er stoltur Reykvíkingur. Ég hef ávallt haldið því fram að Reykjavíkurborg hafi verið hvað allra sveitarfélaga öflugust að viðhalda blómlegu menningarlífi í þágu allra landsmanna og sérstaklega fyrir íbúa hennar.
Af hverju treystir Reykjavík ekki atvinnulífinu?
Stjórnsýsla Reykjavíkurborgar virðist ekki treysta atvinnulífinu. Hún á að haga sér eins og þjónustuaðili en lætur eins og eftirlitsaðili.
Homo Reykjavicus
Eftir einstrengingslegri forskrift pólitískrar forystu sinnar hefur Reykjavíkurborg síðustu 10 árin einblínt á að skapa hinn hugmyndafræðilega fullkomna borgarbúa.
Snúum Reykjavík við
Reykvíkingar kjósa nýja borgarstjórn eftir 24 daga. Í mínum huga snúast kosningarnar um næstu kynslóð Reykvíkinga. Velur unga fólkið að búa í höfuðborginni okkar? Er húsnæði hræðilega dýrt? Er gaman að stofna fyrirtæki? Er ég stanslaust á bið?
Ég býð mig fram til að taka Borgarlínuna fyrir þig
Kæri borgarbúi sem sérð ekki fyrir þér að nota Borgarlínuna - ég býð mig fram til þess að taka Borgarlínuna fyrir þig. Ef þú ert íbúi í Reykjavík og langar aldrei að prófa að taka Borgarlínu þá er það bara allt í lagi.
Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar?
Reykjavíkurborg er eina höfuðborg Norðurlanda þar sem allir borgarfulltrúar eru í 100% starfi hjá borginni.
Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn?
Það eru um 7000 bílastæði í miðbæ Reykjavíkur. Þar af eru 5900 bílastæði í umsjá Reykjavíkurborgar og af þeim eru um 2000 stæði í bílastæðahúsum og restin beint í borgarlandinu.
Biðin bitnar á börnunum
Í Reykjavík fer fram öflugt og fjölbreytt íþróttastarf. Slíkt starf styrkir nærsamfélög og hverfabrag og er ómetanlegt fyrir vellíðan og forvarnir barna. En í of mörgum hverfum er aðstaðan ekki í samræmi við það mikilvæga starf sem unnið er.
Hver ber ábyrgð á heimilisleysi á Íslandi?
Það er óhætt að segja að enginn kýs að vera heimilislaus, húsaskjól er jú ein af grunnþörfum fólks. Alls konar aðstæður og áföll geta hins vegar komið upp í lífi hvers og eins sem geta gert það að verkum að viðkomandi missir húsnæði.
Skítamix sem börnin borga
Skýrsla sem lögð var fram í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur í mars sýnir að 21 prósent leikskóla og 16 prósent grunnskóla í borginni hafa þurft að loka tímabundið, flytja starfsemi eða starfa við verulega skertar aðstæður vegna viðhalds og loftgæðavandamála.
Reykjavíkurborg er ramminn, ekki málverkið
Næsti kafli Reykjavíkur snýst um að endurheimta traust borgarbúa. Það er kominn tími á önnur vinnubrögð, ferskar hugmyndir, nýja kynslóð.
Lífið er soðin ýsa
Það er fáránlega gaman að gera sér glaðan dag, breyta til og bregða út af vananum. Staðreyndin er hins vegar sú að stærsti hluti lífsins fellur í flokk sem nefnist blákaldur hversdagsleiki. Einnig nefndur soðin ýsa.
Um peninga annarra
Það er gjarnan gripið til líkingar um heimilisbókhald þegar talað er um fjármál sveitarfélaga; útgjöld þurfi að vera í einhverju samræmi við innkomuna. Það blasir auðvitað við. En það breytir því ekki að það er eðlismunur á venjulegu heimilisbókhaldi og bókhaldi miðstýrðs valds á borð við Reykjavíkurborg.
Ný kynslóð
Alla ævi hef ég gert grín að frambjóðendum. Þegar venjulegt fólk gengur til liðs við þennan þjóðflokk verður það umsvifalaust 30% hressara, fer út að hlaupa strategískt á móti umferð á Sæbraut á álagstímum, setur upp pottaplan í mismunandi sundlaugum og mætir í Bónus á annatíma í stað þess að Wolta eins og venjulegt fólk.