Hvernig get ég aðstoðað?
Ég er stoltur Reykvíkingur. Ég hef ávallt haldið því fram að Reykjavíkurborg hafi verið hvað allra sveitarfélaga öflugust að viðhalda blómlegu menningarlífi í þágu allra landsmanna og sérstaklega fyrir íbúa hennar.
Staðreyndin er þó sú að menningarlíf hefur dalað á síðustu árum. Það hefur verið lagður steinn í götu þeirra sem vilja bæta nærumhverfi sitt og njóta þess með samborgurum sínum.
Ekki var hægt að halda hátíðina Kátt á Klambratúni í Reykjavík vegna ofrukkunar Reykjavíkurborgar fyrir leigu á Klambratúni og fluttist hún í kjölfarið í Hafnarfjörð. Þessum stórskemmtilega viðburði er því ekki lengur beint að Reykvíkingum.
Borgarstjórn á að efla framtakssama Reykvíkinga til að bæta menningarlíf í borginni. Það er mikið af skapandi fólki í Reykjavík og borgarstjórn á að styðja við þá sem vilja fylla Reykjavíkurborg af lífi, list og menningu.
Viltu vera með tónlistarhátíð í Hljómskálagarðinum? Snilld, hvernig get ég aðstoðað?
Viltu vera með barna- og fjölskylduhátíð á Klambratúni? Frábært mál, þið fáið afnot af því landi fyrir slikk.
Vilt þú vera með pop-up veitingastað í hverfinu þínu? Æðislegt framtak, leyfðu mér að hjálpa þér.
Snúa verður viðhorfinu hjá Reykjavík úr “Þú ert ekki að gera þetta rétt” yfir í “Hvernig get ég aðstoðað?”
Sverrir Páll Einarsson