Húsnæði fyrir fólk
- Tryggjum stöðugt framboð af lóðum
- Byggjum húsnæði sem fólk vill búa í
- Tryggjum systkinaforgang án tafar
- Einföldum regluverk og drögum úr stjórnsemi í borgarkerfinu
- Notum efni úr Miklubrautargöngum í landfyllingar fyrir nýtt hverfi
Uppbygging verður að vera í samræmi við þarfir íbúa og eftirspurn á markaði samkvæmt mælingum. Við þurfum að byggja fyrir einstaklinga og pör, unga sem aldna. Þannig myndast hvati til þess að eldri einstaklingar og pör losi um eignir sem henta barnafjölskyldum. Viðreisn vill samstarf við ríkið um að byggja strax á auðum ríkislóðum í borgarlandinu, til dæmis við Sölvhólsgötu. Þar mætti fókusera á fyrstu eignir á viðráðanlegu verði. Viðreisn vill sjá metnaðarfulla hönnun nýrra reita og að umhverfið sé grænt og hlýlegt. Þá viljum við reka smiðshöggið á þéttingarreiti undanfarinna ár með því að gera þá meira næs fyrir fólk.
Við ætlum að auka gæði þjónustu við uppbyggingaraðila, einfalda regluverk og draga úr stjórnsemi og duttlungum í borgarkerfinu. Það á ekki að vera áhættusamara fyrir verktaka að byggja í Reykjavík en annars staðar, og borgin á að leggja metnað í að veita þessum aðilum framúrskarandi þjónustu, líkt og íbúum. Borgin ber ábyrgð á því að gjöld sem innheimt eru, svo sem innviðagjöld, skili sér sannarlega í innviði. Við viljum að borgin eigi áfram í samvinnu við óhagnaðardrifin leigufélög, á sama tíma og markaðnum er leyft að virka. Þá viljum við lækka hlutfall íbúða sem fara í félagslegt húsnæði í nýjum hverfum. Viðreisn vill einfalda reglur og leyfisveitingar með það að markmiði að auðvelt sé að breyta bílskúrum í íbúðir, skipta upp stórum íbúðum í minni og bæta hæð ofan á hús. Að auki viljum við meiri sveigjanleika í fjölda bílastæða við íbúðarhúsnæði í takt við eftirspurn.
Viðreisn vill að áfram verði unnið af krafti við íbúðabyggð á Ártúnshöfða og styður uppbyggingu á Höllum í Úlfarsárdal, en gríðarlega mikilvægt er að vandað sé til verka við uppbyggingu á þessu stóru nýju hverfi. Þá viljum við að forsendur skipulags Keldnalands verði endurmetnar með tilliti til þess hvernig húsnæði er þörf á að byggja upp, til dæmis þegar litið er til einstaklinga og para, ungs fólks sem og eldra. Til framtíðar viljum við skoða hvort nýta megi efni sem fellur til við gerð Miklubrautarganga í landfyllingar fyrir nýtt hverfi á Grandanum. Eins viljum við skoða nýja byggð á Geldinganesi tengda Sundabraut og Borgarlínu og vistvæna byggð í austurhluta Viðeyjar.
Menning
- Höfum menningu sýnilega, aðgengilega og fjölskylduvæna í öllu hverfum
- Gerum almannarými og útisvæði fallegri
- Nýtum íslenskan bókmenntaarf í að skapa lifandi svæði
- Auðveldum skapandi fólki að bjóða upp á menningu í borginni
Við viljum sérstaklega styrkja menningu í nærumhverfi fólks þannig að hún sé ekki bundin við miðborgina heldur hluti af öllum hverfum borgarinnar. Við leggjum áherslu á barnamenningu og fjölskylduvæna upplifun enda er það okkar sýn að borgin eigi að kveikja forvitni, sköpun og gleði hjá ungum sem öldnum. Við viljum setja barnamenningu í forgang og tryggja fjölbreytt menningarstarf fyrir börn og fjölskyldur.
Eflum enn frekar söfn borgarinnar og menningarrými sem aðgengilega og fjölbreytta samkomustaði með enn stærra hlutverk sem félagslega miðpunkta í lífi borgarbúa. Þá sjáum við mikil tækifæri í því að þróa almannarými og útisvæði þar sem leikur, menning og sögur mætast, til dæmis með því að nýta íslenskan bókmenntaarf í að skapa lifandi svæði. Það mætti til að mynda skapa róló með karakterum Guðrúnar Helgadóttur eða leikvöll innblásinn af Íslendingasögunum. Eins eigum við að hvetja skapandi fólk til þess að nýta svæði borgarinnar til að búa til skemmtilega viðburði fyrir borgarbúa.
Viðreisn hefur stutt nýtt Reykjavíkurkortið og vill efla það enn frekar með þarfir notenda í huga. Þar inni á að vera allt sem viðkemur borginni; aðgangur í söfn, sund, strætó og fleira.
Fjölmenning
- Styðjum fjölbreytt menningarsamfélag og bjóðum fólk velkomið
- Aukum íslenskukennslu í samstarfi við ríkið
- Veitum öllum með íslenska kennitölu kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum
Við eigum að bjóða fólk velkomið og stuðla að raunverulegri inngildingu með því að gera íslenskukennslu og kennslu í íslenskri menningu mun aðgengilegri í samstarfi við ríkið. Hér þarf að huga að öllum hópum; börnum, foreldrum og ungu, barnlausu fólki sem kemur hingað. Tungumálið sem og aðgangur að réttum upplýsingum eru lykilatriði í aðlögun. Góð upplýsingagjöf stuðlar að jafnari tækifærum. Þá vill Viðreisn veita öllum innflytjendum með kennitölu kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum, en til þess þarf að breyta kosningalögum. Við munum beita okkur fyrir þeim breytingum.
Efla þarf móttöku barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn innan grunnskólanna. Það viljum við gera með því að færa þjónustu fyrir börn og fjölskyldur inn í skólana sjálfa. Þá viljum við tryggja að til sé námsefni sem gerir börnunum kleift að læra íslensku og samfélagsfræði með það að markmiði að þeim séu tryggð jöfn tækifæri til þátttöku í íslensku samfélagi. Þá sýna rannsóknir að þegar þú kannt móðurmál þitt vel þá áttu auðveldara með að læra önnur tungumál.
Í Reykjavík hefur það sýnt sig að innflytjendur nota frístundastyrk borgarinnar til þess að greiða fyrir móðurmálskennslu, og börn innflytjenda fara því síður í frístund, íþróttir og aðrar tómstundir. Viðreisn vill kanna leiðir til þess að færa móðurmálskennsluna í auknum mæli inn í grunnskólana svo tryggja megi að öll börn í Reykjavík hafi aðgang að fjölbreyttu frístundastarfi óháð búsetu og efnahag.
Græn og heilnæm borg
- Plöntum 50 þúsund trjám og gerum borgina grænni
- Gerum Reykjavík kolefnishlutlausa 2040
- Höfum ókeypis í strætó á gráum dögum í miklu svifryki
Umhverfismál eru lykilmál í Reykjavík. Viðreisn vill ráðast í skógrækt á illa förnum svæðum í eigu Reykjavíkur sem og endurheimta votlendi í borginni. Við viljum stórauka gróður í borginni og ætlum við að planta 50 þúsund trjáplöntum af ýmsum tegundum á kjörtímabilinu, sérstaklega þar sem þétting hefur verið mikil og græn svæði hafa vikið fyrir byggð.
Í almannarými er hægt að planta ávaxtatrjám og berjarunnum og viljum við leyfa fólki að taka svæði í fóstur til ræktunar á mat. Við ætlum að styðja við líffræðilegan fjölbreytileika og spara pening með því að draga úr grasslætti á völdum svæðum í Reykjavík. Við viljum endurheimta votlendi í borginni og stefnum á kolefnishlutleysi árið 2040, þar með talinn er bílafloti borgarinnar. Viðreisn vill dýravæna borg. Umferðarslys á dýrum eiga að vera skráð. Við viljum búa til hundaleikjagarð í borginni. Fara þarf í öflugar mótvægisaðgerðir þar sem náttúru og heimkynnum villtra dýra er raskað í stórum framkvæmdum.
Minnka þarf svifryksmengun í borginni og því þarf að draga úr notkun nagladekkja með því að ríkið innheimti af þeim skatt og útdeili tekjunum til sveitarfélaga. Frítt verði í strætó á gráum dögum. Við viljum hreina borg þar sem rusl er hirt og almannarými eru hrein, heil og falleg. Við viljum bjóða upp á söfnun lífræns úrgangs fyrir alla borgarbúa. Grenndarstöðvar sem eru í göngufæri þarf að efla til að fækka megi skutlferðum á hverfastöðvar. Íbúar eiga ekki að upplifa sorphirðukvíða og þurfa að finna að borgin sé með þeim í liði þegar kemur að flokkun á rusli. Efla þarf samstarf við einkaaðila í sorpmálum.