Börn og fjölskyldur
Bág staða húsnæðis margra skóla og dýr innviðaskuld er sorgleg staðreynd. Við munum setja stjórn yfir eignasafn borgarinnar og tryggja að byggingum sé haldið við. Liður í því er að það sé umsjónarmaður fasteigna í hverju hverfi. Viðreisn vill byggja vel hannaða skóla og minnir á að sömu teikningu má nýta oftar en einu sinni en laga að lóð og landi hverju sinni. Alltaf skal leitast við að opna bráðabirgðahúsnæði í hverfinu svo draga megi úr skutli og byggja upp öflug kortershverfi, þar sem öll helsta þjónusta er innan seilingar.
Leikskólar
- Bjóðum dagvistun frá því að fæðingarorlofi lýkur
- Styðjum fjölbreytt rekstrarform í dagvistun og leikskólum
- Tryggjum systkinaforgang án tafar
- Höldum skólabyggingum í lagi
- Bætum kjör kvennastétta
Viðreisn vill tryggja dagvistun frá því að fæðingarorlofi lýkur og stoppa í það gat sem nú er í kerfinu. Við munum halda áfram samtali við ríkið um lengingu fæðingarorlofs. Við viljum að Reykjavíkurborg sé leiðandi í leikskólastarfi á landsvísu. Viðreisn er með uppbyggjandi lausnir til að bæta enn frekar starfsumhverfi leikskólanna, án þess þó að skerða þjónustu við börn og fjölskyldur.
Viðreisn styður fjölbreytt rekstrarform í leikskólum og dagvistun, enda er það okkar sýn að það sé hluti af ábyrgum rekstri og áhættustýringu borgarinnar að fá inn fleiri aðila til þess að reka leikskóla. Það eru tækifæri í því að fá vinnustaði að borðinu þegar kemur að því að brúa bilið. Við munum hvetja stóra vinnustaði til að opna dagvistun fyrir ung börn og viðhafa góða samvinnu varðandi slík verkefni. Borgin á að liðka fyrir lausnum, ekki leggja stein í götu íbúa og atvinnulífs.
Fjölgum dagforeldrum í hverfum borgarinnar. Treystum leikskólastjórum til að skipuleggja sitt starf og finna lausnir sem henta hverjum stað fyrir sig. Viðreisn styður tilraunir með sveigjanlegri opnunartíma og sumaropnun án þess að það bitni á faglegu starfi. Þá vill Viðreisn innleiða systkinaforgang í leikskólum borgarinnar án tafar.
Grunnskólar
- Eflum samstarf grunnskóla og frístundastarfs
- Meiri þjónustu og stuðning inn í skólana
- Nýtum skólabyggingar betur og höldum þeim við
- Hinseginfræðslu í alla skóla
Við viljum að kennarar í grunnskólum Reykjavíkur séu fyrst og fremst kennarar en ekki einnig túlkar, sérfræðingar í myglu og hvað annað. Lausnin felst meðal annars í því að færa þjónustu og aukinn stuðning inn í skólana sjálfa. Hér má nefna náms- og starfsráðgjafa, sálfræðinga, túlka, talmeinafræðinga og félagsráðgjafa sem í dag eru í mörgum tilfellum staðsettir í miðstýrðum þjónustumiðstöðvum með tilheyrandi skutli og flækjustigi fyrir fjölskyldur, og auknu álagi á kennara. Höldum áfram að bæta starfsumhverfi kennara.
Við viljum nýta skólabyggingar betur enda eru þær á meðal verðmætustu eigna Reykjavíkur. Við sjáum fyrir okkur líflegt starf í skólunum eftir að kennslu lýkur til hagsbóta fyrir hverfi borgarinnar. Treystum skólastjórnendum til að finna lausnir sem henta starfinu í hverjum skóla fyrir sig.
Viðreisn styður hinsegin fræðslu í grunnskólum og vill tryggja stuðning við hinsegin nemendur í öllu skóla- og frístundastarfi.
Frístundir eru lykilþáttur í velferð, forvörnum, félagsfærni og þroska barna og ungmenna. Viðreisn vill gera störf á frístundaheimilum eftirsóknarverðari með því að leita leiða til að hækka starfshlutfall. Það má gera með auknum undirbúningstíma starfsfólks, samvinnu við grunnskóla og íþróttafélög innan hverfa. Þá viljum við endurskoða sumarlokanir frístundaheimila, fjölga plássum í sumarfrístund og kanna möguleika á að hafa þau opin allt árið um kring til að auka stöðugleika starfsumhverfisins.
Viðreisn vill brúa bil sem er innan frístundastarfsins í borginni þegar kemur að börnum í 5.-7. bekk og finna lausnir til þess í samtali við krakkana sjálfa sem og fagfólkið. Þá þarf að jafna aðstöðu í félagsmiðstöðvum milli hverfa, styrkja vettvangsstarf með unglingum og ungmennum og gera félagsmiðstöðvum kleift að hafa opið í vetrarfríum grunnskólanna ef þau kjósa það. Huga þarf sérstaklega að ungmennum sem eru 16-18 ára í borginni.
Íþróttir og lýðheilsa
- Styðjum við öflugt starf íþróttafélaga og tryggjum jafnt aðgengi barna að aðstöðu
- Höfum falleg, græn svæði í nærumhverfi sem ýta undir hreyfingu og stemningu
- Tryggjum að uppbygging og viðhald íþróttamannvirkja sé gagnsætt og í fókus
- Aukum opnunartíma sundlauga og styrkjum þær sem frábæran samverustað
Við leggjum áherslu á að styðja við öflugt starf íþróttafélaga í hverfum Reykjavíkur og að umhverfi borgarinnar ýti undir útivist og óformlega hreyfingu með fallegum, grænum svæðum í nærumhverfi og uppbyggingu göngu- og hjólastíga og hlaupaleiða þannig að hreyfing sé eðlilegur hluti af daglegu lífi fólks í borginni. Markmiðið er að hreyfing sé ekki eitthvað sem þarf að skipuleggja sérstaklega, heldur eðlilegur hluti af deginum. Þá viljum við efla skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins enn frekar og kanna möguleikana á að opna Skálafell á ný í samstarfi við nágrannasveitarfélögin.
Góð aðstaða, aðgengi og gott umhverfi skipta sköpum fyrir börn og ungmenni enda gegna íþróttamannvirki mikilvægu hlutverki sem jákvæðir samkomustaðir utan æfingatíma. Viðreisn vill einfalda samstarf borgarinnar við íþróttafélögin og tryggja að uppbygging og viðhald íþróttamannvirkja haldist í hendur við raunverulega þörf. Ákvarðanir um uppbyggingu eiga að vera gagnsæjar og taka mið af þörfum barna og fjölskyldna í borginni. Þetta er jafnframt undirstaða þess að kortershverfið virki.
Sundlaugarnar eru ein af sterkustu stoðum borgarlífsins í Reykjavík og eitthvað það allra besta í borginni okkar. Við viljum lengja opnunartíma lauganna og bæta nýtingu þeirra sem samkomustaðar í hversdegi borgarbúa. Með tilkomu Reykjavíkurkortsins munu Reykvíkingar borga minna fyrir sundferðina en aðrir.
Velferð
Velferðarþjónusta
Velferð borgarbúa byggir á mannréttindum, virðingu og sjálfsákvörðunarrétti hvers og eins. Viðreisn vill veita þjónustuna nær íbúum og draga úr óþarfa skriffinnsku.
Viðreisn trúir því að valfrelsi notenda sé hornsteinn góðrar velferðarþjónustu. Starfsfólk í barnavernd og velferðarþjónustu hefur lengi kallað eftir fleiri úrræðum til að bregðast hratt við umsóknum.
Við viljum einfalda umsóknarferla og tryggja að öll geti fylgst með erindum sínum í gegnum rafræna þjónustugátt.
Börn, fjölskyldur og forvarnarstarf
Við leggjum höfuðáherslu á forvarnarstarf til að styðja við börn og barnafjölskyldur, meðal annars með áframhaldandi stuðningi við Betri borg fyrir börn.
Við viljum stórauka samvinnu velferðarþjónustu, barnaverndar og skóla og bæta þjónustu við börn sem glíma við kvíða, áföll eða þunglyndi.
Fólk með fötlun
Við viljum samfélag án aðgreiningar þar sem fólk með fötlun getur tekið virkan þátt og sjálfsákvörðunarréttur hvers og eins er virtur.
Við styðjum áframhaldandi innleiðingu NPA, ætlum að fjölga búsetuúrræðum og vinna markvisst á biðlistum.
Eldri borgarar
Við viljum þjónustu við eldra fólk sem byggir á virkni, einstaklingsmiðun og valfrelsi.
Tryggja verður góða þjónustu í heimahúsum með áherslu á gæði, stuðning og heimahjúkrun.
Aðrar lykiláherslur
Við styðjum „húsnæði fyrst“ og skaðaminnkun til að þjóna fólki með flóknar þjónustuþarfir.