Fjölmenning

Viðreisn styður við fjölbreytt samfélag og vill auðvelda öllum að aðlagast íslenskri menningu. Við viljum eiga opið samtal við fjölskyldur og einstaklinga af erlendum uppruna um hvað þau þurfa til að verða virkari þátttakendur og stoltir borgarbúar.

  • Styðjum fjölbreytt menningarsamfélag og bjóðum fólk velkomið

  • Aukum íslenskukennslu í samstarfi við ríkið

  • Veitum öllum með íslenska kennitölu kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum

Við eigum að bjóða fólk velkomið og stuðla að raunverulegri inngildingu með því að gera íslenskukennslu og kennslu í íslenskri menningu mun aðgengilegri í samstarfi við ríkið. Hér þarf að huga að öllum hópum; börnum, foreldrum og ungu, barnlausu fólki sem kemur hingað. Tungumálið sem og aðgangur að réttum upplýsingum eru lykilatriði í aðlögun. Góð upplýsingagjöf stuðlar að jafnari tækifærum. Þá vill Viðreisn veita öllum innflytjendum með kennitölu kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum, en til þess þarf að breyta kosningalögum. Við munum beita okkur fyrir þeim breytingum.

Efla þarf móttöku barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn innan grunnskólanna. Það viljum við gera með því að færa þjónustu fyrir börn og fjölskyldur inn í skólana sjálfa. Þá viljum við tryggja að til sé námsefni sem gerir börnunum kleift að læra íslensku og samfélagsfræði með það að markmiði að þeim séu tryggð jöfn tækifæri til þátttöku í íslensku samfélagi. 

Þá sýna rannsóknir að þegar þú kannt móðurmál þitt vel þá áttu auðveldara með að læra önnur tungumál. Í Reykjavík hefur það sýnt sig að innflytjendur nota frístundastyrk borgarinnar til þess að greiða fyrir móðurmálskennslu, og börn innflytjenda fara því síður í frístund, íþróttir og aðrar tómstundir. Viðreisn vill kanna leiðir til þess að færa móðurmálskennsluna í auknum mæli inn í grunnskólana svo tryggja megi að öll börn í Reykjavík hafi aðgang að fjölbreyttu frístundastarfi óháð búsetu og efnahag.