Snúum Reykjavík við!

Viðreisn vill nýta tækifærin sem blasa við til þess að taka til í borgarkerfinu. Við viljum draga úr yfirbyggingu í stjórnsýslunni og fækka stjórnendum. Ekki getur talist eðlilegt að það séu hlutfallslega fleiri stjórnendur hjá Reykjavíkurborg en öðrum sveitarfélögum.

Við ætlum að fara betur með opinbert fé, tryggja góðan rekstur í þágu Reykvíkinga, forgangsraða verkefnum og auka fyrirsjáanleika og skilvirkni í þjónustu sem borgin veitir íbúum og atvinnulífi. Við viljum að borgarbúar séu stoltir af borginni sinni. Það gerist meðal annars með því að við sinnum viðhaldi á skólum og íþróttamannvirkjum og að borgin sé hrein, græn og falleg – okkur öllum til sóma. Við viljum byggja upp kortershverfi þar sem daglegt líf gengur upp, hverfi þar sem helsta þjónusta er í innan við korters fjarlægð frá heimili. Þannig drögum við úr óþarfa skutli og aukum frelsi fjölskyldna í hversdeginum.

Með því að draga saman í miðlægri stjórnsýslu, sameina svið og endurskipuleggja fagráð borgarinnar einföldum við kerfið. Við styttum boðleiðir og setjum fókusinn á þjónustu við íbúa. Við ljúkum verkefnum sem þjóna ekki lengur tilgangi sínum og setjum kjarnaverkefni í forgang. Viðreisn mun þannig árlega setja allt að milljarð króna sem í dag fer í stjórnsýslu yfir í grunnþjónustu við Reykvíkinga.

Viðreisn hefur beitt sér fyrir því, og mun gera áfram, að borgin bjóði út rekstur sem augljóst er að einkaaðilar geta sinnt betur. Á meðal þess er sala á Malbikunarstöðinni Höfða, sala fasteigna sem ekki tengjast kjarnastarfsemi borgarinnar og að skila rekstri hjúkrunarheimilisins Droplaugarstaða til ríkisins enda er rekstur hjúkrunarheimila á könnu ríkisins. Perlan er gott dæmi um vel heppnaða sölu á eignum borgarinnar og tækifærin eru fleiri. Eins munum við tryggja að nærliggjandi sveitarfélög greiði kostnað við þjónustu sem borgin sinnir til dæmis í velferðar- og félagsmálum. Reykjavíkurborg á ekki að bera kostnað af þjónustu fyrir önnur sveitarfélög.

Við ætlum að byggja upp traust milli borgarbúa og borgarstjórnar. Það gerist til að mynda með því að skerpa á ábyrgð, hlutverki og umboði stjórnmálamanna og embættismanna. Það gerist líka með því að treysta fagfólki og Reykvíkingum og draga úr miðstýringu og stjórnsemi. Viðreisn vill að borgarfulltrúar taki ábyrgð á því sem gerist í borginni og sýni það í verki. Við erum óhrædd við að taka erfiðar ákvarðanir í þágu þess að efla þjónustu borgarinnar, auka skilvirkni og byggja upp betri framtíð. Viðreisn vill nota tæknilausnir, mælingar og gervigreind til að ná fram byltingarkenndum breytingum.

Við vitum að starf borgarfulltrúans er þjónustustarf. Við erum tilbúin til að bretta upp ermar, ganga í verkin og hugsa í lausnum.