Íþróttir og lýðheilsa
Íþróttir, útivist og hreyfing eru lykilþáttur í lýðheilsu, forvörnum og sterku samfélagi. Viðreisn vill að Reykjavík sé borg þar sem við öll höfum góðan aðgang að íþróttum og hreyfingu, óháð aldri, efnahag eða búsetu.
Styðjum við öflugt starf íþróttafélaga og tryggjum jafnt aðgengi barna að aðstöðu
Höfum falleg, græn svæði í nærumhverfi sem ýta undir hreyfingu og stemningu
Tryggjum að uppbygging og viðhald íþróttamannvirkja sé gagnsætt og í fókus
Aukum opnunartíma sundlauga og styrkjum þær sem frábæran samverustað
Við leggjum áherslu á að styðja við öflugt starf íþróttafélaga í hverfum Reykjavíkur og að umhverfi borgarinnar ýti undir útivist og óformlega hreyfingu með fallegum, grænum svæðum í nærumhverfi og uppbyggingu göngu- og hjólastíga og hlaupaleiða þannig að hreyfing sé eðlilegur hluti af daglegu lífi fólks í borginni. Markmiðið er að hreyfing sé ekki eitthvað sem þarf að skipuleggja sérstaklega, heldur eðlilegur hluti af deginum. Þá viljum við efla skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins enn frekar og kanna möguleikana á að opna Skálafell á ný í samstarfi við nágrannasveitarfélögin.
Góð aðstaða, aðgengi og gott umhverfi skipta sköpum fyrir börn og ungmenni enda gegna íþróttamannvirki mikilvægu hlutverki sem jákvæðir samkomustaðir utan æfingatíma. Viðreisn vill einfalda samstarf borgarinnar við íþróttafélögin og tryggja að uppbygging og viðhald íþróttamannvirkja haldist í hendur við raunverulega þörf. Ákvarðanir um uppbyggingu eiga að vera gagnsæjar og taka mið af þörfum barna og fjölskyldna í borginni. Þetta er jafnframt undirstaða þess að kortershverfið virki.
Sundlaugarnar eru ein af sterkustu stoðum borgarlífsins í Reykjavík og eitthvað það allra besta í borginni okkar. Við viljum lengja opnunartíma lauganna og bæta nýtingu þeirra sem samkomustaðar í hversdegi borgarbúa. Með tilkomu Reykjavíkurkortsins munu Reykvíkingar borga minna fyrir sundferðina en aðrir.