Velferð
Velferð borgarbúa byggir á mannréttindum, virðingu og sjálfsákvörðunarrétti hvers og eins. Viðreisn vill veita þjónustuna nær íbúum og draga úr óþarfa skriffinnsku.
Veitum öllum tækifæri til að nýta sína hæfileika
Höldum uppi öflugu forvarnarstarfi
Tryggjum þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu
Þjónusta við eldri borgara byggi á virkni og valfrelsi
Velferðarþjónusta
Velferð borgarbúa byggir á mannréttindum, virðingu og sjálfsákvörðunarrétti hvers og eins. Viðreisn vill veita þjónustuna nær íbúum og draga úr óþarfa skriffinnsku.
Viðreisn trúir því að valfrelsi notenda sé hornsteinn góðrar velferðarþjónustu. Starfsfólk í barnavernd og velferðarþjónustu hefur lengi kallað eftir fleiri úrræðum til að bregðast hratt við umsóknum. Við hlustum á þær raddir og viljum fjölga úrræðum, meðal annars með því að auka samstarf við félagasamtök og sjálfstætt starfandi aðila. Þannig skapast fjölbreyttari úrræði sem mæta betur og hraðar þörfum hvers og eins.
Við viljum einfalda umsóknarferla og tryggja að öll geti fylgst með, og fylgt eftir erindum sínum í gegnum rafræna þjónustugátt. Þeir sem ekki geta nýtt sér rafrænar lausnir skulu fá sérstakan stuðning.
Börn, fjölskyldur og forvarnarstarf
Við leggjum höfuðáherslu á forvarnarstarf til að styðja við börn og barnafjölskyldur, meðal annars með áframhaldandi stuðningi við Betri borg fyrir börn.
Rannsóknir sýna að aukinn stuðningur við fjölskyldur í félagslega erfiðri stöðu skilar sér beint í bættum námsárangri og líðan nemenda í skóla. Það dregur jafnframt úr álagi í skólastarfinu. Við viljum stórauka samvinnu velferðarþjónustu, barnaverndar og skóla og bæta þjónustu við börn sem glíma við kvíða, áföll eða þunglyndi. Fagfólk í skólum á að hafa beinan aðgang að félagslegum stuðningi án óþarfa milligöngu, enda ætlum við að færa stoðþjónustu inn í skólana.
Fólk með fötlun
Við viljum samfélag án aðgreiningar þar sem fólk með fötlun getur tekið virkan þátt og sjálfsákvörðunarréttur hvers og eins er virtur. Við styðjum áframhaldandi innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA), ætlum að fjölga búsetuúrræðum og vinna markvisst á biðlistum.
Viðhafa skal samráð við fatlað fólk á öllum stigum í anda hugmyndafræðinnar „ekkert um okkur án okkar“. Við viljum tryggja atvinnuþátttöku fatlaðs fólk. Fjölga má hlutastörfum og auka sveigjanleika á vinnumarkaði. Auka þarf samstarf borgarinnar við atvinnulífið á þessu sviði.
Eldri borgarar
Við viljum þjónustu við eldra fólk sem byggir á virkni, einstaklingsmiðun og valfrelsi, þar með talið í matarþjónustu, húsnæðismálum og félagslífi. Við styðjum fjölbreytt rekstrarform og samstarf við félagasamtök aldraðs fólks um húsnæðisuppbyggingu í öllum hverfum.
Það að fara á eftirlaun eða nálgast þau er ein stærsta breyting sem fólk upplifir á lífsleiðinni. Þá skiptir miklu máli að hafa aðgang að góðri ráðgjöf og stuðningi. Reykvíkingar eiga að hafa aðgang að slíkri þjónustu, hvort sem hún snýr að því að skipuleggja næstu skref, virkni, nám eða þátttöku í samfélaginu. Þar getur ævilöng náms- og starfsráðgjöf gegnt lykilhlutverki. Þetta snýst um að fólk hafi val og yfirsýn og standi ekki eitt frammi fyrir stórum breytingum.
Tryggja verður góða þjónustu fyrir einstaklinga í heimahúsum, svo sem aðgengi, hjálpartæki, endurhæfingu, hreyfingu, fæði og síðast en ekki síst framúrskarandi stuðningsþjónustu og heimahjúkrun. Gæði heimaþjónustu þurfa að vera í fyrirrúmi með skýrum verkferlum og reglulegum gæðakönnunum. Við ætlum að fjölga hjúkrunarheimilum en skila rekstri Droplaugarstaða til ríkisins og selja fasteignina enda er það verkefni ríkisvaldsins að reka hjúkrunarheimili.
Aðrar lykiláherslur
Við styðjum hugmyndafræðina um „húsnæði fyrst„ og skaðaminnkun til að þjóna fólki með flóknar þjónustuþarfir, svo sem heimilislausum. Við viljum stytta biðlista eftir sérfræðiráðgjöf og styðjum virkniúrræði fyrir þá sem hafa verið lengi utan vinnumarkaðar.