Græn og heilnæm borg
Umhverfismál eru lykilmál í Reykjavík. Viðreisn vill ráðast í skógrækt á illa förnum svæðum í eigu Reykjavíkur sem og endurheimta votlendi í borginni. Við viljum stórauka gróður í borginni og ætlum við að planta 50 þúsund trjáplöntum af ýmsum tegundum á kjörtímabilinu, sérstaklega þar sem þétting hefur verið mikil og græn svæði hafa vikið fyrir byggð.
Plöntum 50 þúsund trjám og gerum borgina grænni
Gerum Reykjavík kolefnishlutlausa 2040
Höfum ókeypis í strætó á gráum dögum í miklu svifryki
Umhverfismál eru lykilmál í Reykjavík. Viðreisn vill ráðast í skógrækt á illa förnum svæðum í eigu Reykjavíkur sem og endurheimta votlendi í borginni. Við viljum stórauka gróður í borginni og ætlum við að planta 50 þúsund trjáplöntum af ýmsum tegundum á kjörtímabilinu, sérstaklega þar sem þétting hefur verið mikil og græn svæði hafa vikið fyrir byggð.
Í almannarými er hægt að planta ávaxtatrjám og berjarunnum og viljum við leyfa fólki að taka svæði í fóstur til ræktunar á mat. Við ætlum að styðja við líffræðilegan fjölbreytileika og spara pening með því að draga úr grasslætti á völdum svæðum í Reykjavík. Við viljum endurheimta votlendi í borginni og stefnum á kolefnishlutleysi árið 2040, þar með talinn er bílafloti borgarinnar. Viðreisn vill dýravæna borg. Umferðarslys á dýrum eiga að vera skráð. Við viljum búa til hundaleikjagarð í borginni. Fara þarf í öflugar mótvægisaðgerðir þar sem náttúru og heimkynnum villtra dýra er raskað í stórum framkvæmdum.
Minnka þarf svifryksmengun í borginni og því þarf að draga úr notkun nagladekkja með því að ríkið innheimti af þeim skatt og útdeili tekjunum til sveitarfélaga. Frítt verði í strætó á gráum dögum. Við viljum hreina borg þar sem rusl er hirt og almannarými eru hrein, heil og falleg. Við viljum bjóða upp á söfnun lífræns úrgangs fyrir alla borgarbúa. Grenndarstöðvar sem eru í göngufæri þarf að efla til að fækka megi skutlferðum á hverfastöðvar. Íbúar eiga ekki að upplifa sorphirðukvíða og þurfa að finna að borgin sé með þeim í liði þegar kemur að flokkun á rusli. Efla þarf samstarf við einkaaðila í sorpmálum.