Menning

Menning er órjúfanlegur hluti af lífinu í borginni og lykill að lifandi og skemmtilegu samfélagi. Viðreisn vill að Reykjavík sé borg þar sem menning er sýnileg, aðgengileg og hluti af daglegu lífi íbúa.

  • Höfum menningu sýnilega, aðgengilega og fjölskylduvæna í öllu hverfum

  • Gerum almannarými og útisvæði fallegri

  • Nýtum íslenskan bókmenntaarf í að skapa lifandi svæði

  • Auðveldum skapandi fólki að bjóða upp á menningu í borginni

Við viljum sérstaklega styrkja menningu í nærumhverfi fólks þannig að hún sé ekki bundin við miðborgina heldur hluti af öllum hverfum borgarinnar. Við leggjum áherslu á barnamenningu og fjölskylduvæna upplifun enda er það okkar sýn að borgin eigi að kveikja forvitni, sköpun og gleði hjá ungum sem öldnum. Við viljum setja barnamenningu í forgang og tryggja fjölbreytt menningarstarf fyrir börn og fjölskyldur.

Eflum enn frekar söfn borgarinnar og menningarrými sem aðgengilega og fjölbreytta samkomustaði með enn stærra hlutverk sem félagslega miðpunkta í lífi borgarbúa. Þá sjáum við mikil tækifæri í því að þróa almannarými og útisvæði þar sem leikur, menning og sögur mætast, til dæmis með því að nýta íslenskan bókmenntaarf í að skapa lifandi svæði. Það mætti til að mynda skapa róló með karakterum Guðrúnar Helgadóttur eða leikvöll innblásinn af Íslendingasögunum. Eins eigum við að hvetja skapandi fólk til þess að nýta svæði borgarinnar til að búa til skemmtilega viðburði fyrir borgarbúa.

Viðreisn hefur stutt nýtt Reykjavíkurkortið og vill efla það enn frekar með þarfir notenda í huga. Þar inni á að vera allt sem viðkemur borginni; aðgangur í söfn, sund, strætó og fleira.