Samgöngumál

Góðar samgöngur eru lykilatriði fyrir Reykvíkinga. Viðreisn vill að fólk hafi frelsi til að velja á milli góðra  ferðamáta sem virka vel um borgina. Að hafa fjölbreyttari valkosti en einkabílinn er gott fyrir budduna, til dæmis þegar fjölskyldur sjá fram á að geta losað sig við bíl númer tvö eða þrjú þegar aðrir samgöngumátar virka vel. 

  • Tryggjum sterka og fjölbreytta samgöngumáta sem fólk hefur frelsi til að velja um

  • Styðjum Samgöngusáttmálann fyrir framtíð Reykjavíkur 

  • Hröðum vegaframkvæmdum við Bústaðaveg og Miklubraut

  • Komum böndum á gjaldskyldufrumskóg bílastæða

Viðreisn styður Samgöngusáttmálann og við viljum halda áfram með Borgarlínu sem er grundvallaratriði fyrir framtíð Reykjavíkur. Að sama skapi verðum við að hraða sem mest framkvæmdum sem gagnast bílum, til dæmis mislægum gatnamótum Bústaðavegar og Sæbrautar, Miklubraut í jarðgöng og lagningu Sundabrautar. Eins er mikilvægt að bæta flæði umferðar með snjallri stýringu umferðarljósum og markvissum aðgerðum þar sem tafir eru mestar. Eflum áfram þjónustu Strætó, framlengjum metnaðarfulla hjólreiðaáætlun Reykjavíkur og aðlögum hana að nýjum hverfum og auknum fjölda hjólreiðamanna. 

Kortershverfi og góð þjónusta inni í hverfunum er lykilbreyta í því að draga úr skutli sem er fastur liður í lífi Reykvíkinga í dag. Börn þurfa að geta gengið örugga og vel upplýsta leið í skólann og það á að vera auðvelt fyrir börn og ungmenni að nýta almenningssamgöngur. Öflug vetrarþjónusta á gangstéttum og hjólastígum gerir það að raunhæfum möguleika að nýta hjól og aðra virka ferðamáta allan ársins hring. 

Við styðjum vegferð atvinnuvegaráðherra að koma böndum á frumskóginn þegar kemur að gjaldtöku á bílastæðum með neytendavernd að leiðarljósi. Þegar þeirri vinnu er lokið viljum við bjóða út rekstur bílastæðahúsa borgarinnar, auk þess sem við viljum bjóða út byggingu nýs bílastæðahúss í miðbænum. Þá viljum við að bílastæðahúsin séu opin allan sólarhringinn, meðal annars til þess að ferðamenn geti nýtt þau í meira mæli en nú er. 

Viðreisn mun áfram beita sér fyrir frelsi og samkeppni á rafskútumarkaði og halda áfram að styðja við nýsköpun og nýjungar í samgöngumálum.

Viðreisn styður að Reykjavíkurflugvöllur sé til langs tíma litið víkjandi. Á meðan hann er á núverandi stað sé flugöryggi og notagildi flugvallarins tryggt. Í samræmi við samþykkta tillögu Viðreisnar í borgarstjórn viljum við að einka-, þyrlu-, kennslu- og æfingaflug færist frá flugvelli borgarinnar sem fyrst.