Börn og fjölskyldur
Viðreisn vill einfalda daglegt líf barna og fjölskyldna í Reykjavík. Það gerum við með því að tryggja að öll helsta þjónusta borgarinnar sé í nærumhverfi og að hún sé til staðar þar sem íbúarnir eru og þegar þeir þurfa á henni að halda. Það gengur ekki að börnin í Reykjavík séu stanslaust á bið. Við viljum að börnum finnist frábært að alast upp í borginni og kjósi að búa hér sem fullorðið fólk.
Reykjavík á að vera í forystu í skólamálum og þangað viljum við komast. Jafnrétti er einn af hornsteinum stefnu Viðreisnar og við viljum bæta kjör stórra kvennastétta. Mikilvægur liður í því er rétt virðismat á störfum í leik- og grunnskólum og við munum beita okkur fyrir því. Leiksvæði barnanna eiga að vera aðlaðandi og í góðu ástandi svo að þau séu staðir sem fjölskyldur sækja í. Ef borg er góð fyrir börn er hún góð fyrir alla.
Bág staða húsnæðis margra skóla og dýr innviðaskuld er sorgleg staðreynd. Við munum setja stjórn yfir eignasafn borgarinnar og tryggja að byggingum sé haldið við. Liður í því er að það sé umsjónarmaður fasteigna í hverju hverfi. Viðreisn vill byggja vel hannaða skóla og minnir á að sömu teikningu má nýta oftar en einu sinni en laga að lóð og landi hverju sinni. Alltaf skal leitast við að opna bráðabirgðahúsnæði í hverfinu svo draga megi úr skutli og byggja upp öflug kortershverfi, þar sem öll helsta þjónusta er innan seilingar.
Leikskólar
Bjóðum dagvistun frá því að fæðingarorlofi lýkur
Styðjum fjölbreytt rekstrarform í dagvistun og leikskólum
Tryggjum systkinaforgang án tafar
Höldum skólabyggingum í lagi
Bætum kjör kvennastétta
Við setjum leikskólana í forgang. Leikskólar eru mikilvægar menntastofnanir og eru fyrsti snertipunktur barna við borgina sína. Það er jafnréttismál að leikskólakerfið virki fyrir börn og foreldra, ekki aðeins þegar horft er til jafnréttis kynjanna og stöðu þeirra á vinnumarkaði, heldur einnig þegar horft er til inngildingar í samfélaginu, til dæmis hefur verið sýnt fram á að því fyrr sem börn innflytjenda komast inn á leikskóla því betur vegnar þeim síðar í skóla.
Viðreisn vill tryggja dagvistun frá því að fæðingarorlofi lýkur og stoppa í það gat sem nú er í kerfinu. Við munum halda áfram samtali við ríkið um lengingu fæðingarorlofs. Við viljum að Reykjavíkurborg sé leiðandi í leikskólastarfi á landsvísu. Viðreisn er með uppbyggjandi lausnir til að bæta enn frekar starfsumhverfi leikskólanna, án þess þó að skerða þjónustu við börn og fjölskyldur.
Viðreisn styður fjölbreytt rekstrarform í leikskólum og dagvistun, enda er það okkar sýn að það sé hluti af ábyrgum rekstri og áhættustýringu borgarinnar að fá inn fleiri aðila til þess að reka leikskóla. Það eru tækifæri í því að fá vinnustaði að borðinu þegar kemur að því að brúa bilið. Við munum hvetja stóra vinnustaði til að opna dagvistun fyrir ung börn og viðhafa góða samvinnu varðandi slík verkefni. Borgin á að liðka fyrir lausnum, ekki leggja stein í götu íbúa og atvinnulífs.
Fjölgum dagforeldrum í hverfum borgarinnar. Treystum leikskólastjórum til að skipuleggja sitt starf og finna lausnir sem henta hverjum stað fyrir sig. Viðreisn styður tilraunir með sveigjanlegri opnunartíma og sumaropnun án þess að það bitni á faglegu starfi. Þá vill Viðreisn innleiða systkinaforgang í leikskólum borgarinnar án tafar.
Grunnskólar, frístundastarf og félagsmiðstöðvar
Eflum samstarf grunnskóla og frístundastarfs
Meiri þjónustu og stuðning inn í skólana
Nýtum skólabyggingar betur og höldum þeim við
Hinseginfræðslu í alla skóla
Grunnskólar, frístundastarf og félagsmiðstöðvar eru einn mikilvægasti þátturinn í grunnþjónustu Reykjavíkur þar sem faglegt starf leikur lykilhlutverk. Viðreisn vill auka samþættingu og samstarf milli þessara grunnstoða í lífi barna í borginni.
Við viljum að kennarar í grunnskólum Reykjavíkur séu fyrst og fremst kennarar en ekki einnig túlkar, sérfræðingar í myglu og hvað annað. Lausnin felst meðal annars í því að færa þjónustu og aukinn stuðning inn í skólana sjálfa. Hér má nefna náms- og starfsráðgjafa, sálfræðinga, túlka, talmeinafræðinga og félagsráðgjafa sem í dag eru í mörgum tilfellum staðsettir í miðstýrðum þjónustumiðstöðvum með tilheyrandi skutli og flækjustigi fyrir fjölskyldur, og auknu álagi á kennara. Höldum áfram að bæta starfsumhverfi kennara.
Við viljum nýta skólabyggingar betur enda eru þær á meðal verðmætustu eigna Reykjavíkur. Við sjáum fyrir okkur líflegt starf í skólunum eftir að kennslu lýkur til hagsbóta fyrir hverfi borgarinnar. Treystum skólastjórnendum til að finna lausnir sem henta starfinu í hverjum skóla fyrir sig.
Viðreisn styður hinsegin fræðslu í grunnskólum og vill tryggja stuðning við hinsegin nemendur í öllu skóla- og frístundastarfi.
Frístundir eru lykilþáttur í velferð, forvörnum, félagsfærni og þroska barna og ungmenna. Viðreisn vill gera störf á frístundaheimilum eftirsóknarverðari með því að leita leiða til að hækka starfshlutfall. Það má gera með auknum undirbúningstíma starfsfólks, samvinnu við grunnskóla og íþróttafélög innan hverfa. Þá viljum við endurskoða sumarlokanir frístundaheimila, fjölga plássum í sumarfrístund og kanna möguleika á að hafa þau opin allt árið um kring til að auka stöðugleika starfsumhverfisins.
Viðreisn vill brúa bil sem er innan frístundastarfsins í borginni þegar kemur að börnum í 5.-7. bekk og finna lausnir til þess í samtali við krakkana sjálfa sem og fagfólkið. Þá þarf að jafna aðstöðu í félagsmiðstöðvum milli hverfa, styrkja vettvangsstarf með unglingum og ungmennum og gera félagsmiðstöðvum kleift að hafa opið í vetrarfríum grunnskólanna ef þau kjósa það. Huga þarf sérstaklega að ungmennum sem eru 16-18 ára í borginni.