Húsnæði fyrir fólk

Húsnæðisuppbygging og skipulagsmál eru eitt af lykilverkefnum borgarinnar. Við viljum sjá fallega og fjölbreytta byggð og íbúðir af góðum gæðum á viðráðanlegu verði sem fólk vill búa í um alla borg. 

  • Tryggjum stöðugt framboð af lóðum

  • Byggjum húsnæði sem fólk vill búa í 

  • Einföldum regluverk og drögum úr stjórnsemi í borgarkerfinu

  • Notum efni úr Miklubrautargöngum í landfyllingar fyrir nýtt hverfi


Uppbygging verður að vera í samræmi við þarfir íbúa og eftirspurn á markaði samkvæmt mælingum. Við þurfum að byggja fyrir einstaklinga og pör, unga sem aldna. Þannig myndast hvati til þess að eldri einstaklingar og pör losi um eignir sem henta barnafjölskyldum. Viðreisn vill samstarf við ríkið um að byggja strax á auðum ríkislóðum í borgarlandinu, til dæmis við Sölvhólsgötu. Þar mætti fókusera á fyrstu eignir á viðráðanlegu verði. Viðreisn vill sjá metnaðarfulla hönnun nýrra reita og að umhverfið sé grænt og hlýlegt. Þá viljum við reka smiðshöggið á þéttingarreiti undanfarinna ár með því að gera þá meira næs fyrir fólk.

Við ætlum að auka gæði þjónustu við uppbyggingaraðila, einfalda regluverk og draga úr stjórnsemi og duttlungum í borgarkerfinu. Það á ekki að vera áhættusamara fyrir verktaka að byggja í Reykjavík en annars staðar, og borgin á að leggja metnað í að veita þessum aðilum framúrskarandi þjónustu, líkt og íbúum. Borgin ber ábyrgð á því að gjöld sem innheimt eru, svo sem innviðagjöld, skili sér sannarlega í innviði. Við viljum að borgin eigi áfram í samvinnu við óhagnaðardrifin leigufélög, á sama tíma og markaðnum er leyft að virka. Þá viljum við lækka hlutfall íbúða sem fara í félagslegt húsnæði í nýjum hverfum. Viðreisn vill einfalda reglur og leyfisveitingar með það að markmiði að auðvelt sé að breyta bílskúrum í íbúðir, skipta upp stórum íbúðum í minni og bæta hæð ofan á hús. Að auki viljum við meiri sveigjanleika í fjölda bílastæða við íbúðarhúsnæði í takt við eftirspurn. 

Viðreisn vill að áfram verði unnið af krafti við íbúðabyggð á Ártúnshöfða og styður uppbyggingu á Höllum í Úlfarsárdal, en gríðarlega mikilvægt er að vandað sé til verka við uppbyggingu á þessu stóru nýju hverfi. Þá viljum við að forsendur skipulags Keldnalands verði endurmetnar með tilliti til þess hvernig húsnæði er þörf á að byggja upp, til dæmis þegar litið er til einstaklinga og para, ungs fólks sem og eldra. 

Til framtíðar viljum við skoða hvort nýta megi efni sem fellur til við gerð Miklubrautarganga í landfyllingar fyrir nýtt hverfi á Grandanum. Eins viljum við skoða nýja byggð á Geldinganesi tengda Sundabraut og Borgarlínu og vistvæna byggð í austurhluta Viðeyjar.