Homo Reykjavicus
Eftir einstrengingslegri forskrift pólitískrar forystu sinnar hefur Reykjavíkurborg síðustu 10 árin einblínt á að skapa hinn hugmyndafræðilega fullkomna borgarbúa. Köllum hann hér Homo Reykjavicus. Þið þekkið öll þessa manneskju, þótt hún sé hvergi til nema í skrifræðisfeni borgarinnar; hún flokkar rétt, býr í réttum fjölda fermetra, ferðast rétt, heldur barnafmæli rétt, borðar rétt og hugsar rétt. Þetta verkefni hefur verið unnið á kostnað þess að veita góða þjónustu. Afrakstur stjórnlyndisins stendur ekki á sér: 13% borgarbúa bera traust til borgarstjórnar. Vantraustið er með öðrum orðum algjört. Stóra verkefni nýrrar borgarstjórnar verður að snúa þessari þróun við. Hvernig gerum við það?
Frjálslyndi er eitt af lykilstefjum okkar í Viðreisn. Og hvað er frjálslyndi? Það þýðir ekki bara umburðarlyndi, heldur er það líka andstæðan við stjórnlyndi. Í dag lætur borgin ekkert mannlegt sér óviðkomandi og lítur ekki á það sem frumhlutverk sitt að þjónusta borgarbúa, heldur að stýra lífsháttum þeirra.
Tökum húsnæðismálin sem dæmi. Á síðustu árum hefur borgin kappkostað að byggja íbúðir fyrir Homo Reykjavicus. Borgin hefur hvorki tekið mið af óskum íbúa né þeirra sem byggja. Þvert á móti hefur hún þvingað fram uppbyggingu á stórum og dýrum íbúðum fyrir fjölskyldur sem eru ekki til. Þróunin í Reykjavík er í sömu átt og við sjáum í höfuðborgum hinna norrænu landanna; eftirspurn eftir einmenningsheimilum hefur stóraukist og mun halda áfram að aukast. Þetta þarf Reykjavíkurborg að meðtaka með því að taka mið af raunveruleikanum.
Í bókinni Zen Mind, Beginners Mind eftir Shunryu Suzuki er því lýst hvernig búddistar horfa á stjórnun. Þar segir að besta leiðin til þess að stjórna sauðfé sé að gefa því „stórt og mikið tún“. Það nákvæmlega sama gildir um fólk. Ef þú reynir að stýra því, þá mun þér mistakast – það er að segja þú endar með 13% traust. „Besta leiðin er að hvetja fólk til prakkarastrika. Það versta sem þú getur gert er að hunsa fólk. Það næstversta er að reyna að stjórna því. Best er bara að fylgjast með því, bara horfa, ekki reyna að stýra.“
Leiðin til að endurheimta traustið er einföld. Borgin á að bjóða upp á góða þjónustu sem gerir fólki kleift að lifa því lífi sem það vill lifa. Hún á að hætta að reyna að ala fólk upp eða neyða það inn í einstrengingslegan lífsstíl sem það kaus ekki. Þannig fáum við frjálslyndari, skemmtilegri og dínamískari borg.
Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar
í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík.