Málefni Viðreisnar í stuttu máli

  • Góð þjónusta við Reykvíkinga er aðalverkefni borgarinnar. Öflugir skólar, sterkar samgöngur, spennandi söfn, sundlaugar, velferðarþjónusta, húsnæðisuppbygging og að halda borginni hreinni og fallegri eru mikilvæg dæmi. Viðreisn vill að Reykjavík verði skemmtilegri, frjálslyndari og skilvirkari borg með kortershverfi þar sem lykilþjónusta er í nálægð við íbúana. Við viljum að næsta kynslóð Reykvíkinga velji að setjast að í höfuðborginni.

  • Viðreisn vill nýta tækifærin sem blasa við til þess að taka til í borgarkerfinu. Við viljum draga úr yfirbyggingu í stjórnsýslunni og fækka stjórnendum. Ekki getur talist eðlilegt að það séu hlutfallslega fleiri stjórnendur hjá Reykjavíkurborg en öðrum sveitarfélögum.

  • Reykjavík á að vera í forystu í skólamálum og þangað viljum við komast. Jafnrétti er einn af hornsteinum stefnu Viðreisnar og við viljum bæta kjör stórra kvennastétta. Mikilvægur liður í því er rétt virðismat á störfum í leik- og grunnskólum og við munum beita okkur fyrir því. Leiksvæði barnanna eiga að vera aðlaðandi og í góðu ástandi svo að þau séu staðir sem fjölskyldur sækja í. Ef borg er góð fyrir börn er hún góð fyrir alla. 

    Bág staða húsnæðis margra skóla og dýr innviðaskuld er sorgleg staðreynd. Við munum setja stjórn yfir eignasafn borgarinnar og tryggja að byggingum sé haldið við. Liður í því er að það sé umsjónarmaður fasteigna í hverju hverfi. Viðreisn vill byggja vel hannaða skóla og minnir á að sömu teikningu má nýta oftar en einu sinni en laga að lóð og landi hverju sinni. Alltaf skal leitast við að opna bráðabirgðahúsnæði í hverfinu svo draga megi úr skutli og byggja upp öflug kortershverfi, þar sem öll helsta þjónusta er innan seilingar. 

  • Grunnskólar, frístundastarf og félagsmiðstöðvar eru einn mikilvægasti þátturinn í grunnþjónustu Reykjavíkur þar sem faglegt starf leikur lykilhlutverk. Viðreisn vill auka samþættingu og samstarf milli þessara grunnstoða í lífi barna í borginni. 

    Við viljum að kennarar í grunnskólum Reykjavíkur séu fyrst og fremst kennarar en ekki einnig túlkar, sérfræðingar í myglu og hvað annað. Lausnin felst meðal annars í því að færa þjónustu og aukinn stuðning inn í skólana sjálfa. Hér má nefna náms- og starfsráðgjafa, sálfræðinga, túlka, talmeinafræðinga og félagsráðgjafa sem í dag eru í mörgum tilfellum staðsettir í miðstýrðum þjónustumiðstöðvum með tilheyrandi skutli og flækjustigi fyrir fjölskyldur, og auknu álagi á kennara. Höldum áfram að bæta starfsumhverfi kennara.

    Við viljum nýta skólabyggingar betur enda eru þær á meðal verðmætustu eigna Reykjavíkur. Við sjáum fyrir okkur líflegt starf í skólunum eftir að kennslu lýkur til hagsbóta fyrir hverfi borgarinnar. Treystum skólastjórnendum til að finna lausnir sem henta starfinu í hverjum skóla fyrir sig.

    Viðreisn styður hinsegin fræðslu í grunnskólum og vill tryggja stuðning við hinsegin nemendur í öllu skóla- og frístundastarfi.

    Frístundir eru lykilþáttur í velferð, forvörnum, félagsfærni og þroska barna og ungmenna. Viðreisn vill gera störf á frístundaheimilum eftirsóknarverðari með því að leita leiða til að hækka starfshlutfall. Það má gera með auknum undirbúningstíma starfsfólks, samvinnu við grunnskóla og íþróttafélög innan hverfa. Þá viljum við endurskoða sumarlokanir frístundaheimila, fjölga plássum í sumarfrístund og kanna möguleika á að hafa þau opin allt árið um kring til að auka stöðugleika starfsumhverfisins.

    Viðreisn vill brúa bil sem er innan frístundastarfsins í borginni þegar kemur að börnum í 5.-7. bekk og finna lausnir til þess í samtali við krakkana sjálfa sem og fagfólkið. Þá þarf að jafna aðstöðu í félagsmiðstöðvum milli hverfa, styrkja vettvangsstarf með unglingum og ungmennum og gera félagsmiðstöðvum kleift að hafa opið í vetrarfríum grunnskólanna ef þau kjósa það. Huga þarf sérstaklega að ungmennum sem eru 16-18 ára í borginni.

  • Eignasjóður Reykjavíkurborgar er stærsta fasteignafélag landsins, en er ekki rekið í samræmi við það. Skortur á viðhaldi á eignum borgarinnar er ein skýrasta birtingarmynd þess ábyrgðarleysis sem ríkir við stjórn borgarinnar. Því miður virðist enginn bera ábyrgð á fasteignum borgarinnar sem eru afar verðmætar.

    • Sinnum viðhaldi jafnt og þétt

    • Setjum stjórn yfir fasteignir borgarinnar

    • Höfum gagnsæi í framkvæmdum og setjum upp mælaborð


    Viðreisn vill breyta þessu í samræmi við þær áherslur okkar að borgarfulltrúar taki ábyrgð, forgangsraði verkefnum og séu óhræddir við að taka ákvarðanir. Við munum setja stjórn yfir eignasafn borgarinnar sem tryggir að byggingar séu í lagi og að viðhaldi sé sinnt jafnt og þétt svo koma megi í veg fyrir þau fjölmörgu vandamál sem komið hafa upp síðustu ár. Við eigum að nýta byggingar í eigu borgarinnar eins vel og kostur er, hafa gagnsæi í framkvæmdum og byrja þar sem þörfin er mest.

    Viðreisn ætlar að setja upp Mælaborð framkvæmda í Reykjavík þar sem íbúar og fyrirtæki geta fylgst með framvindu mála í rauntíma, til dæmis ef verið er að gera upp leikskólann í hverfinu eða leggja nýja gangstétt fyrir utan heima hjá þér.

  • Húsnæðisuppbygging og skipulagsmál eru eitt af lykilverkefnum borgarinnar. Við viljum sjá fallega og fjölbreytta byggð og íbúðir af góðum gæðum á viðráðanlegu verði sem fólk vill búa í um alla borg. 

    • Tryggjum stöðugt framboð af lóðum

    • Byggjum húsnæði sem fólk vill búa í 

    • Einföldum regluverk og drögum úr stjórnsemi í borgarkerfinu

    • Notum efni úr Miklubrautargöngum í landfyllingar fyrir nýtt hverfi


    Uppbygging verður að vera í samræmi við þarfir íbúa og eftirspurn á markaði samkvæmt mælingum. Við þurfum að byggja fyrir einstaklinga og pör, unga sem aldna. Þannig myndast hvati til þess að eldri einstaklingar og pör losi um eignir sem henta barnafjölskyldum. Viðreisn vill samstarf við ríkið um að byggja strax á auðum ríkislóðum í borgarlandinu, til dæmis við Sölvhólsgötu. Þar mætti fókusera á fyrstu eignir á viðráðanlegu verði. Viðreisn vill sjá metnaðarfulla hönnun nýrra reita og að umhverfið sé grænt og hlýlegt. Þá viljum við reka smiðshöggið á þéttingarreiti undanfarinna ár með því að gera þá meira næs fyrir fólk.

    Við ætlum að auka gæði þjónustu við uppbyggingaraðila, einfalda regluverk og draga úr stjórnsemi og duttlungum í borgarkerfinu. Það á ekki að vera áhættusamara fyrir verktaka að byggja í Reykjavík en annars staðar, og borgin á að leggja metnað í að veita þessum aðilum framúrskarandi þjónustu, líkt og íbúum. Borgin ber ábyrgð á því að gjöld sem innheimt eru, svo sem innviðagjöld, skili sér sannarlega í innviði. Við viljum að borgin eigi áfram í samvinnu við óhagnaðardrifin leigufélög, á sama tíma og markaðnum er leyft að virka. Þá viljum við lækka hlutfall íbúða sem fara í félagslegt húsnæði í nýjum hverfum. Viðreisn vill einfalda reglur og leyfisveitingar með það að markmiði að auðvelt sé að breyta bílskúrum í íbúðir, skipta upp stórum íbúðum í minni og bæta hæð ofan á hús. Að auki viljum við meiri sveigjanleika í fjölda bílastæða við íbúðarhúsnæði í takt við eftirspurn. 

    Viðreisn vill að áfram verði unnið af krafti við íbúðabyggð á Ártúnshöfða og styður uppbyggingu á Höllum í Úlfarsárdal, en gríðarlega mikilvægt er að vandað sé til verka við uppbyggingu á þessu stóru nýju hverfi. Þá viljum við að forsendur skipulags Keldnalands verði endurmetnar með tilliti til þess hvernig húsnæði er þörf á að byggja upp, til dæmis þegar litið er til einstaklinga og para, ungs fólks sem og eldra. 

    Til framtíðar viljum við skoða hvort nýta megi efni sem fellur til við gerð Miklubrautarganga í landfyllingar fyrir nýtt hverfi á Grandanum. Eins viljum við skoða nýja byggð á Geldinganesi tengda Sundabraut og Borgarlínu og vistvæna byggð í austurhluta Viðeyjar.

  • Góðar samgöngur eru lykilatriði fyrir Reykvíkinga. Viðreisn vill að fólk hafi frelsi til að velja á milli góðra  ferðamáta sem virka vel um borgina. Að hafa fjölbreyttari valkosti en einkabílinn er gott fyrir budduna, til dæmis þegar fjölskyldur sjá fram á að geta losað sig við bíl númer tvö eða þrjú þegar aðrir samgöngumátar virka vel. 

    • Tryggjum sterka og fjölbreytta samgöngumáta sem fólk hefur frelsi til að velja um

    • Styðjum Samgöngusáttmálann fyrir framtíð Reykjavíkur 

    • Hröðum vegaframkvæmdum við Bústaðaveg og Miklubraut

    • Komum böndum á gjaldskyldufrumskóg bílastæða

    Viðreisn styður Samgöngusáttmálann og við viljum halda áfram með Borgarlínu sem er grundvallaratriði fyrir framtíð Reykjavíkur. Að sama skapi verðum við að hraða sem mest framkvæmdum sem gagnast bílum, til dæmis mislægum gatnamótum Bústaðavegar og Sæbrautar, Miklubraut í jarðgöng og lagningu Sundabrautar. Eins er mikilvægt að bæta flæði umferðar með snjallri stýringu umferðarljósum og markvissum aðgerðum þar sem tafir eru mestar. Eflum áfram þjónustu Strætó, framlengjum metnaðarfulla hjólreiðaáætlun Reykjavíkur og aðlögum hana að nýjum hverfum og auknum fjölda hjólreiðamanna. 

    Kortershverfi og góð þjónusta inni í hverfunum er lykilbreyta í því að draga úr skutli sem er fastur liður í lífi Reykvíkinga í dag. Börn þurfa að geta gengið örugga og vel upplýsta leið í skólann og það á að vera auðvelt fyrir börn og ungmenni að nýta almenningssamgöngur. Öflug vetrarþjónusta á gangstéttum og hjólastígum gerir það að raunhæfum möguleika að nýta hjól og aðra virka ferðamáta allan ársins hring. 

    Við styðjum vegferð atvinnuvegaráðherra að koma böndum á frumskóginn þegar kemur að gjaldtöku á bílastæðum með neytendavernd að leiðarljósi. Þegar þeirri vinnu er lokið viljum við bjóða út rekstur bílastæðahúsa borgarinnar, auk þess sem við viljum bjóða út byggingu nýs bílastæðahúss í miðbænum. Þá viljum við að bílastæðahúsin séu opin allan sólarhringinn, meðal annars til þess að ferðamenn geti nýtt þau í meira mæli en nú er. 

    Viðreisn mun áfram beita sér fyrir frelsi og samkeppni á rafskútumarkaði og halda áfram að styðja við nýsköpun og nýjungar í samgöngumálum.

    Viðreisn styður að Reykjavíkurflugvöllur sé til langs tíma litið víkjandi. Á meðan hann er á núverandi stað sé flugöryggi og notagildi flugvallarins tryggt. Í samræmi við samþykkta tillögu Viðreisnar í borgarstjórn viljum við að einka-, þyrlu-, kennslu- og æfingaflug færist frá flugvelli borgarinnar sem fyrst.

  • Menning er órjúfanlegur hluti af lífinu í borginni og lykill að lifandi og skemmtilegu samfélagi. Viðreisn vill að Reykjavík sé borg þar sem menning er sýnileg, aðgengileg og hluti af daglegu lífi íbúa.

    • Höfum menningu sýnilega, aðgengilega og fjölskylduvæna í öllu hverfum

    • Gerum almannarými og útisvæði fallegri

    • Nýtum íslenskan bókmenntaarf í að skapa lifandi svæði

    • Auðveldum skapandi fólki að bjóða upp á menningu í borginni

    Við viljum sérstaklega styrkja menningu í nærumhverfi fólks þannig að hún sé ekki bundin við miðborgina heldur hluti af öllum hverfum borgarinnar. Við leggjum áherslu á barnamenningu og fjölskylduvæna upplifun enda er það okkar sýn að borgin eigi að kveikja forvitni, sköpun og gleði hjá ungum sem öldnum. Við viljum setja barnamenningu í forgang og tryggja fjölbreytt menningarstarf fyrir börn og fjölskyldur.

    Eflum enn frekar söfn borgarinnar og menningarrými sem aðgengilega og fjölbreytta samkomustaði með enn stærra hlutverk sem félagslega miðpunkta í lífi borgarbúa. Þá sjáum við mikil tækifæri í því að þróa almannarými og útisvæði þar sem leikur, menning og sögur mætast, til dæmis með því að nýta íslenskan bókmenntaarf í að skapa lifandi svæði. Það mætti til að mynda skapa róló með karakterum Guðrúnar Helgadóttur eða leikvöll innblásinn af Íslendingasögunum. Eins eigum við að hvetja skapandi fólk til þess að nýta svæði borgarinnar til að búa til skemmtilega viðburði fyrir borgarbúa.

    Viðreisn hefur stutt nýtt Reykjavíkurkortið og vill efla það enn frekar með þarfir notenda í huga. Þar inni á að vera allt sem viðkemur borginni; aðgangur í söfn, sund, strætó og fleira.

  • Íþróttir, útivist og hreyfing eru lykilþáttur í lýðheilsu, forvörnum og sterku samfélagi. Viðreisn vill að Reykjavík sé borg þar sem við öll höfum góðan aðgang að íþróttum og hreyfingu, óháð aldri, efnahag eða búsetu.

    • Styðjum við öflugt starf íþróttafélaga og tryggjum jafnt aðgengi barna að aðstöðu

    • Höfum falleg, græn svæði í nærumhverfi sem ýta undir hreyfingu og stemningu

    • Tryggjum að uppbygging og viðhald íþróttamannvirkja sé gagnsætt og í fókus

    • Aukum opnunartíma sundlauga og styrkjum þær sem frábæran samverustað


    Við leggjum áherslu á að styðja við öflugt starf íþróttafélaga í hverfum Reykjavíkur og að umhverfi borgarinnar ýti undir útivist og óformlega hreyfingu með fallegum, grænum svæðum í nærumhverfi og uppbyggingu göngu- og hjólastíga og hlaupaleiða þannig að hreyfing sé eðlilegur hluti af daglegu lífi fólks í borginni. Markmiðið er að hreyfing sé ekki eitthvað sem þarf að skipuleggja sérstaklega, heldur eðlilegur hluti af deginum. Þá viljum við efla skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins enn frekar og kanna möguleikana á að opna Skálafell á ný í samstarfi við nágrannasveitarfélögin. 

    Góð aðstaða, aðgengi og gott umhverfi skipta sköpum fyrir börn og ungmenni enda gegna íþróttamannvirki mikilvægu hlutverki sem jákvæðir samkomustaðir utan æfingatíma. Viðreisn vill einfalda samstarf borgarinnar við íþróttafélögin og tryggja að uppbygging og viðhald íþróttamannvirkja haldist í hendur við raunverulega þörf. Ákvarðanir um uppbyggingu eiga að vera gagnsæjar og taka mið af þörfum barna og fjölskyldna í borginni. Þetta er jafnframt undirstaða þess að kortershverfið virki. 

    Sundlaugarnar eru ein af sterkustu stoðum borgarlífsins í Reykjavík og eitthvað það allra besta í borginni okkar. Við viljum lengja opnunartíma lauganna og bæta nýtingu þeirra sem samkomustaðar í hversdegi borgarbúa. Með tilkomu Reykjavíkurkortsins munu Reykvíkingar borga minna fyrir sundferðina en aðrir.

  • Viðreisn styður við fjölbreytt samfélag og vill auðvelda öllum að aðlagast íslenskri menningu. Við viljum eiga opið samtal við fjölskyldur og einstaklinga af erlendum uppruna um hvað þau þurfa til að verða virkari þátttakendur og stoltir borgarbúar.

    • Styðjum fjölbreytt menningarsamfélag og bjóðum fólk velkomið

    • Aukum íslenskukennslu í samstarfi við ríkið

    • Veitum öllum með íslenska kennitölu kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum

    Við eigum að bjóða fólk velkomið og stuðla að raunverulegri inngildingu með því að gera íslenskukennslu og kennslu í íslenskri menningu mun aðgengilegri í samstarfi við ríkið. Hér þarf að huga að öllum hópum; börnum, foreldrum og ungu, barnlausu fólki sem kemur hingað. Tungumálið sem og aðgangur að réttum upplýsingum eru lykilatriði í aðlögun. Góð upplýsingagjöf stuðlar að jafnari tækifærum. Þá vill Viðreisn veita öllum innflytjendum með kennitölu kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum, en til þess þarf að breyta kosningalögum. Við munum beita okkur fyrir þeim breytingum.

    Efla þarf móttöku barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn innan grunnskólanna. Það viljum við gera með því að færa þjónustu fyrir börn og fjölskyldur inn í skólana sjálfa. Þá viljum við tryggja að til sé námsefni sem gerir börnunum kleift að læra íslensku og samfélagsfræði með það að markmiði að þeim séu tryggð jöfn tækifæri til þátttöku í íslensku samfélagi. 

    Þá sýna rannsóknir að þegar þú kannt móðurmál þitt vel þá áttu auðveldara með að læra önnur tungumál. Í Reykjavík hefur það sýnt sig að innflytjendur nota frístundastyrk borgarinnar til þess að greiða fyrir móðurmálskennslu, og börn innflytjenda fara því síður í frístund, íþróttir og aðrar tómstundir. Viðreisn vill kanna leiðir til þess að færa móðurmálskennsluna í auknum mæli inn í grunnskólana svo tryggja megi að öll börn í Reykjavík hafi aðgang að fjölbreyttu frístundastarfi óháð búsetu og efnahag.

  • Velferð borgarbúa byggir á mannréttindum, virðingu og sjálfsákvörðunarrétti hvers og eins. Viðreisn vill veita þjónustuna nær íbúum og draga úr óþarfa skriffinnsku.

    • Veitum öllum tækifæri til að nýta sína hæfileika 

    • Höldum uppi öflugu forvarnarstarfi

    • Tryggjum þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu

    • Þjónusta við eldri borgara byggi á virkni og valfrelsi

    Velferðarþjónusta 
    Velferð borgarbúa byggir á mannréttindum, virðingu og sjálfsákvörðunarrétti hvers og eins. Viðreisn vill veita þjónustuna nær íbúum og draga úr óþarfa skriffinnsku. 

    Viðreisn trúir því að valfrelsi notenda sé hornsteinn góðrar velferðarþjónustu. Starfsfólk í barnavernd og velferðarþjónustu hefur lengi kallað eftir fleiri úrræðum til að bregðast hratt við umsóknum. Við hlustum á þær raddir og viljum fjölga úrræðum, meðal annars með því að auka samstarf við félagasamtök og sjálfstætt starfandi aðila. Þannig skapast fjölbreyttari úrræði sem mæta betur og hraðar þörfum hvers og eins.

    Við viljum einfalda umsóknarferla og tryggja að öll geti fylgst með, og fylgt eftir erindum sínum í gegnum rafræna þjónustugátt. Þeir sem ekki geta nýtt sér rafrænar lausnir skulu fá sérstakan stuðning.


    Börn, fjölskyldur og forvarnarstarf
    Við leggjum höfuðáherslu á forvarnarstarf til að styðja við börn og barnafjölskyldur, meðal annars með áframhaldandi stuðningi við Betri borg fyrir börn.

    Rannsóknir sýna að aukinn stuðningur við fjölskyldur í félagslega erfiðri stöðu skilar sér beint í bættum námsárangri og líðan nemenda í skóla. Það dregur jafnframt úr álagi í skólastarfinu. Við viljum stórauka samvinnu velferðarþjónustu, barnaverndar og skóla og bæta þjónustu við börn sem glíma við kvíða, áföll eða þunglyndi. Fagfólk í skólum á að hafa beinan aðgang að félagslegum stuðningi án óþarfa milligöngu, enda ætlum við að færa stoðþjónustu inn í skólana.


    Fólk með fötlun
    Við viljum samfélag án aðgreiningar þar sem fólk með fötlun getur tekið virkan þátt og sjálfsákvörðunarréttur hvers og eins er virtur. Við styðjum áframhaldandi innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA), ætlum að fjölga búsetuúrræðum og vinna markvisst á biðlistum.

    Viðhafa skal samráð við fatlað fólk á öllum stigum í anda hugmyndafræðinnar „ekkert um okkur án okkar“. Við viljum tryggja atvinnuþátttöku fatlaðs fólk. Fjölga má hlutastörfum og auka sveigjanleika á vinnumarkaði. Auka þarf samstarf borgarinnar við atvinnulífið á þessu sviði.

    Eldri borgarar
    Við viljum þjónustu við eldra fólk sem byggir á virkni, einstaklingsmiðun og valfrelsi, þar með talið í matarþjónustu, húsnæðismálum og félagslífi. Við styðjum fjölbreytt rekstrarform og samstarf við félagasamtök aldraðs fólks um húsnæðisuppbyggingu í öllum hverfum.

    Það að fara á eftirlaun eða nálgast þau er ein stærsta breyting sem fólk upplifir á lífsleiðinni. Þá skiptir miklu máli að hafa aðgang að góðri ráðgjöf og stuðningi. Reykvíkingar eiga að hafa aðgang að slíkri þjónustu, hvort sem hún snýr að því að skipuleggja næstu skref, virkni, nám eða þátttöku í samfélaginu. Þar getur ævilöng náms- og starfsráðgjöf gegnt lykilhlutverki. Þetta snýst um að fólk hafi val og yfirsýn og standi ekki eitt frammi fyrir stórum breytingum.

    Tryggja verður góða þjónustu fyrir einstaklinga í heimahúsum, svo sem aðgengi, hjálpartæki, endurhæfingu, hreyfingu, fæði og síðast en ekki síst framúrskarandi stuðningsþjónustu og heimahjúkrun. Gæði heimaþjónustu þurfa að vera í fyrirrúmi með skýrum verkferlum og reglulegum gæðakönnunum. Við ætlum að fjölga hjúkrunarheimilum en skila rekstri Droplaugarstaða til ríkisins og selja fasteignina enda er það verkefni ríkisvaldsins að reka hjúkrunarheimili.


    Aðrar lykiláherslur
    Við styðjum hugmyndafræðina um „húsnæði fyrst„ og skaðaminnkun til að þjóna fólki með flóknar þjónustuþarfir, svo sem heimilislausum. Við viljum stytta biðlista eftir sérfræðiráðgjöf og styðjum virkniúrræði fyrir þá sem hafa verið lengi utan vinnumarkaðar.

  • Blómlegt atvinnulíf gerir Reykjavík að betri stað til að búa á og skapar fjölmörg afleidd tækifæri fyrir borgarbúa. Viðreisn vill að það sé einfalt og skemmtilegt að stofna fyrirtæki í Reykjavík og að borgin bjóði umhverfi sem laðar að fjölbreytt atvinnulíf, sem er undirstaða velferðar.

    • Einföldum leyfisumsóknir fyrir fólk sem ætlar að stofna fyrirtæki

    • Lækkum fasteignaskatta

    • Fögnum þeim sem vilja hefja rekstur

    • Byggjum áfram upp aðlaðandi hverfi kringum háskóla í hjarta borgarinnar

    Við viljum auðvelda einstaklingum að stunda rekstur á smáum og stórum skala, til dæmis með því að einfalda leyfisumsóknir, gera ferlið allt skilvirkara og að umsækjendum sé boðin aukin aðstoð frá borginni í ferlinu öllu. Viðreisn vill beita sér fyrir áframhaldandi lækkun fasteignaskatta. 

    Það er ekki sjálfsagt að fólk fari út í rekstur eða stofni fyrirtæki. Reykjavíkurborg á ekki að standa í vegi fyrir þeim sem kjósa að leggja af stað í slíka vegferð heldur beinlínis taka því fagnandi. Borgin á að virka eins og þjónustustofnun, ekki eftirlitsstofnun. Viðreisn styður heilshugar við þær breytingar sem atvinnuvegaráðherra hefur lagt til með Stofnun atvinnuveganna. Þær breytingar fela í sér umfangsmikla einföldun á regluverki sem mun gera það að verkum að það verður einfalt og gaman að opna til dæmis bakarí eða kaffihús í borginni. 

    Við styðjum við nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, meðal annars með því stuðla að áframhaldandi uppbyggingu í kringum háskólana tvo og gera það eftirsóknarvert fyrir nýsköpunar- og tæknifyrirtæki að vera með starfsemi sína í hjarta borgarinnar.

  • Umhverfismál eru lykilmál í Reykjavík. Viðreisn vill ráðast í skógrækt á illa förnum svæðum í eigu Reykjavíkur sem og endurheimta votlendi í borginni. Við viljum stórauka gróður í borginni og ætlum við að planta 50 þúsund trjáplöntum af ýmsum tegundum á kjörtímabilinu, sérstaklega þar sem þétting hefur verið mikil og græn svæði hafa vikið fyrir byggð.

    • Plöntum 50 þúsund trjám og gerum borgina grænni

    • Gerum Reykjavík kolefnishlutlausa 2040

    • Höfum ókeypis í strætó á gráum dögum í miklu svifryki

    Umhverfismál eru lykilmál í Reykjavík. Viðreisn vill ráðast í skógrækt á illa förnum svæðum í eigu Reykjavíkur sem og endurheimta votlendi í borginni. Við viljum stórauka gróður í borginni og ætlum við að planta 50 þúsund trjáplöntum af ýmsum tegundum á kjörtímabilinu, sérstaklega þar sem þétting hefur verið mikil og græn svæði hafa vikið fyrir byggð.

    Í almannarými er hægt að planta ávaxtatrjám og berjarunnum og viljum við leyfa fólki að taka svæði í fóstur til ræktunar á mat. Við ætlum að styðja við líffræðilegan fjölbreytileika og spara pening með því að draga úr grasslætti á völdum svæðum í Reykjavík. Við viljum endurheimta votlendi í borginni og stefnum á kolefnishlutleysi árið 2040, þar með talinn er bílafloti borgarinnar. Viðreisn vill dýravæna borg. Umferðarslys á dýrum eiga að vera skráð. Við viljum búa til hundaleikjagarð í borginni. Fara þarf í öflugar mótvægisaðgerðir þar sem náttúru og heimkynnum villtra dýra er raskað í stórum framkvæmdum.

    Minnka þarf svifryksmengun í borginni og því þarf að draga úr notkun nagladekkja með því að ríkið innheimti af þeim skatt og útdeili tekjunum til sveitarfélaga. Frítt verði í strætó á gráum dögum. Við viljum hreina borg þar sem rusl er hirt og almannarými eru hrein, heil og falleg. Við viljum bjóða upp á söfnun lífræns úrgangs fyrir alla borgarbúa. Grenndarstöðvar sem eru í göngufæri þarf að efla til að fækka megi skutlferðum á hverfastöðvar. Íbúar eiga ekki að upplifa sorphirðukvíða og þurfa að finna að borgin sé með þeim í liði þegar kemur að flokkun á rusli. Efla þarf samstarf við einkaaðila í sorpmálum.