Snúum Reykjavík við
Ég fór í pólitík útaf mygluðum leikskóla. 33ja mánaða bið eftir plássi í ónýtri byggingu sem fljótlega var lokað. Slatti af starfsfólkinu fylgdi ekki með í varaleikskólann í þarnæsta hverfi en sá skóli er á niðurrifsáætlun borgarinnar – líka myglaður. Þetta er staðan um alla Reykjavík. Innviðir eru í molum vegna þess að borgin hefur ekki sinnt viðhaldi og grundvallaratriðum. Of mörg hégómaverkefni hafa fengið framgöngu á kostnað nauðsynja. Við ætlum að snúa við forgangsröðuninni. Minni peninga í kerfið, meiri peninga í fólkið.
Ný kynslóð
Á framboðslista Viðreisnar eru Reykvíkingar úr ýmsum áttum sem hafa rekið sig á borgarkerfið. Foreldrar barna sem bíða eftir plássi og þjónustu. Fólk sem hefur stofnað og rekið eigin fyrirtæki og lent í flækjum og biðsal borgarinnar eftir leyfum, úttektum og svörum. Kona sem hefur unnið á öllum skólastigum og brennur fyrir því að Reykjavík nái aftur forystu í skólamálum. Maður sem hefur verið bæjarstjóri á tveimur stöðum á landinu og ráðgjafi hjá 59 sveitarfélögum, m.a. Reykjavík. Við erum ný kynslóð sem ætlum að taka til hendinni.
Þjónustuborg, ekki eftirlitsborg
Traust til borgarstjórnar er 13 prósent. Við viljum snúa þeirri stöðu við. Ein leið til að öðlast traust er að treysta á móti. Viðreisn treystir atvinnulífinu og framtakssömu fólki til að fylgja reglum og leggja gott til samfélagsins. Við treystum Reykvíkingum til að ákveða hvernig þeir vilja búa og hvað þeir þurfa mörg bílastæði. Reykjavík á að vera þjónustuborg en ekki eftirlitsborg. Við ætlum að stytta löng skipurit. Þetta þýðir að við munum fækka starfsfólki í Ráðhúsinu, starfsfólki sem ekki er í beinni snertingu við borgarbúa. Við viljum við lækka kostnað við kjörna fulltrúa. Við stöndum með Samgöngusáttmálanum sem er fjármagnaður samningur alls höfuðborgarsvæðisins og ríkið greiðir að 87,5 prósentum. Samningurinn innheldur mestu fjárfestingu í Reykjavík frá upphafi byggðar hér fyrir bíla og almenningssamgöngur.
Það eru margar ástæður fyrir því að fólk fer í pólitík. Sum eru að leita að þægilegri innivinnu eða sviði fyrir egóin. Við í Viðreisn erum í pólitík því við viljum snúa fókusnum við þannig að Reykjavík verði borg sem næsta kynslóð velur að búa í. Og að Reykjavík verði borg sem fólk elskar að búa í. Snúum Reykjavík við fyrir framtíðina.
Björg Magnúsdóttir